Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Alzheimersamtökin: Fræðsla fyrir nýgreinda og aðstandendur þeirra

16. janúar @ 16:00 - 17:00

Við greiningu á heilabilun vakna eðlilega margar spurningar og afar mikilvægt er að fá svör við þeim svo að þú og fjölskyldan þín geti verið sem best í stakk búin til að takast á við þær áskoranir sem framundan eru.

Á þessum fræðslufundi verður m.a fjallað um hvað heilabilun er, lífið með heilabilun og ýmis hagnýt ráð ásamt því að starfsemi og markmið Seiglunnar, þjónustumiðstöðvar Alzheimersamtakanna er kynnt.

Sigurbjörg Hannesdóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna og Harpa Björgvinsdóttir, verkefnastjóri Seiglunnar sjá um fræðsluna og verður boðið upp á að spyrja spurninga og umræður að lokinni fræðslu.

Fræðslan fer fram þriðjudaginn, 16 janúar næstkomandi í Seiglunni klukkan 16:00 til 17:00, Lífsgæðasetri St. Jósefsspítala Suðurgötu 41, 3ja hæð, 220 Hafnarfirði.

Sjá nánar: Fræðsla fyrir nýgreinda og aðstandendur þeirra (alzheimer.is)

Upplýsingar

Dagsetning:
16. janúar
Tími:
16:00 - 17:00
Viðburðir Flokkur:

Vettvangur

Lífsgæðasetur St. Jósepsspítala
Suðurgata 41
Hafnarfjörður, 220 Iceland
+ Google Map