Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Endóvikan

06.03.2023 - 10.03.2023

Endósamtökin halda Endóvikuna 6. til 10. mars með fjölda viðburða.

Endó 5k
Endósamtökin kynna í fyrsta skipti Endó 5k í Elliðárdalnum. MÆTING VIÐ RAFSTÖÐINA.

Við ætlum að fylgja þeirri alþjóðlegu hefð og halda 5 km skemmtiskokk til að vekja athygli á endómetríósu! Allir geta tekið þátt hvort sem þau hlaupa, labba, hlabba eða taka kerrupúlið á næsta level.

Viðburðurinn er öllum að kostnaðarlausu svo dragið alla þá sem ykkur þykir vænt um og dustið af gulu flíkinni í skápnum ykkar.

Hlaupið hefst kl. 17:30 en fínt að mæta kl. 17:00 og fá númer og hita upp!

DJ Dóra Júlía mun peppa okkur af stað.

SKRÁNING ER HAFIN HÉR : https://bit.ly/3YB6A2a

Listaverkauppboð
Endósamtökin kynna: Listaverkauppboð á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars.

Við höfum fengið til liðs við okkur margt af fremsta listafólki landsins og efnum til listaverkauppboðs til styrktar íslenskri heimildarmynd um endómetríósu sem samtökin og Silfra Productions eru að vinna að.

Uppboðið mun fara fram á netinu frá 8. -15. mars. Þann 8. mars kl. 17 verður haldin opnun í Höfuðstöðinni, Rafstöðvarvegi 1a þar sem verkin verða til sýnis meðan á uppboðinu stendur. Opnunin er opin öllum en boðið verður upp á léttar veitingar og lifandi tónlist.

Endósamtökin eru óendanlega þakklát bæði listafólkinu sem var svo rausnarlegt að gefa okkur listaverk, sem og Höfuðstöðinni sem bauðst til að lána okkur sýningarrými fyrir viðburðinn.

Below the Belt sýning:
Endósamtökin kynna í Endóvikunni 2023: Sýning á: Below the belt!

VIð höfum tryggt okkur sýningarétt á endómyndinni Below the belt og mun hún fara fram þann 9. mars í Endóvikunni 2023.

Hægt verður að kaupa miða á www.tix.is og munu félagsmeðlimir njóta sérkjara og fá að vita af miðasölu fyrr.

Dagskrá:
18:00 Húsið opnar
18:30 Fordrykkur og léttar veitingar
19:00 Myndin hefst
20:00 Pallborðsumræður
Sýning á myndinni er styrkt af Benecta.

Upplýsingar

Start:
06.03.2023
End:
10.03.2023
Viðburðir Flokkur:

Skipuleggjandi

Endósamtökin