Fjólublátt ljós við barinn afhent

Fjólublátt ljós við barinn, aðgengisviðurkenning UngÖBÍ, verður afhent þann föstudaginn 2. október á Iceland Parliament Hotel, Thorvaldsenstræti 2-6, við hátíðlega athöfn.
Fjólubláa ljósið er veitt þeim sem hafa stuðlað að bættu aðgengi fatlaðs fólks að skemmtanalífi á Íslandi.
Þetta er í þriðja sinn sem viðurkenningin er veitt en síðast féll hún í skaut Einstök bar. Vertu með þegar UngÖBÍ veitir Fjólubláa ljósið. Því eins og við vitum er partýið skemmtilegra þegar öll eru með! Húsið opnar klukkan 19:30.
Nánari upplýsingar má finna á Facebook viðburðinum » FJÓLUBLÁTT LJÓS VIÐ BARINN AFHENT | Facebook



