Viðburðir

Morgunbollinn – Listvinnzlan um menningu og mannréttindi

Listvinnzlan er vinnustaður þar sem list, mannréttindi og sköpunarkraftur mætast.
Hún er framsækið menningar-, mannréttinda- og nýsköpunarverkefni sem skapar raunveruleg atvinnutækifæri fyrir fatlað listafólk og tryggir aðgang að faglegu vinnuumhverfi, stuðningi og virkri þátttöku í íslensku menningarlífi.

Auðlesið mál & mannréttindi

Snorri Rafn Hallsson verkefnastjóri segir frá Miðstöð um auðlesið mál. Við eigum öll rétt á upplýsingum á máli sem við skiljum. Aðeins þannig getum við notið réttinda okkar, nýtt tækifæri...

Framkvæmdaráðsfundur

Mannréttindahúsið Sigtún 42, Reykjavík

Fyrsti fundur framkvæmdaráðs ÖBÍ réttindasamtaka á nýju ári 2026

Morgunbollinn fræðsla: Hreyfing þegar þú hefur lítinn tíma.

Byrjum nýtt ár með krafti! Hvernig er hægt að koma hreyfingu inn í daglegt líf þegar tíminn er naumur? Á þessum fræðsluviðburði verður fjallað um einfaldar, raunhæfar og árangursríkar leiðir til að auka hreyfingu án þess að það krefjist mikils tíma, búnaðar eða undirbúnings.

Stjórnarfundur

Mannréttindahúsið Sigtún 42, Reykjavík

Fyrsti fundur stjórnar ÖBÍ réttindasamtaka á nýju ári 2026 er 22. janúar.

Mannréttindamorgunn – Hatur og mannréttindi

Ingileif Friðriksdóttir hefur á undanförnum árum látið að sér kveða í umræðu um mannréttindi í íslensku samfélagi. Hún var framleiðandi sjónvarpsþáttarins HATUR sem sýndur var á RÚV síðastliðið haust, þar...

Morgunbollinn – Listvinnzlan um menningu og mannréttindi

Listvinnzlan er vinnustaður þar sem list, mannréttindi og sköpunarkraftur mætast. Heitt á könnunni kl.9:30 fyrirlestur hefst kl. 10:00. Kynning um Listvinnzluna sem er  framsækið menningar-, mannréttinda- og nýsköpunarverkefni sem skapar...

Námskeið: Hvernig geta öryrkjar verið sjálfstætt starfandi?

Námskeið um eigin rekstur, skil á gjöldum og framtalsgerð Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 frá kl. 14-17. Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42. Reykjavík (2 hæð). Leiðbeinandi er Jón Arnar Baldurs, aðjunkt við viðskiptafræðideild...

Hey Google, talar þú íslensku? Opinn fundur um raddstýringu

ÖBÍ réttindasamtök og Almannarómur standa fyrir opnum fundi um raddstýringu í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, þann 16. febrúar klukkan 15:00. Ræðum hvernig raddstýring getur opnað snjalltækni fyrir fleirum, sérstaklega mörgum fötlunarhópum,...

Morgunbollinn: Medic Alert

Heitt á könnunni frá kl. 9:30. Fyrirlestur hefst kl.10:00. Yfir morgunbollanum kynnumst við Medic Alert armböndunum sem er einföld en lífsnauðsynleg lausn sem miðlar mikilvægum heilsuupplýsingum þegar mest á reynir....