Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Fræðslufundur CCU samtakanna

06.10.2022 @ 20:00 - 21:30

Næsti fræðslufundur CCU verður fimmtudagskvöldið 6. október nk. Að þessu sinni ætlum við að vera með fyrirspurnarfund og erum búin að fá nokkrar kjarnakonur til að taka þátt: Anna Lind Traustadóttir næringarfræðingur, Sigríður Hanna Ingólfsdóttir félagsráðgjafi hjá ÖBÍ og svo mæta annaðhvort eða báðar Anna Soffía Guðmundsdóttir sérfræðingur í hjúkrun einstaklinga með meltingarsjúkdóma og Margrét Marín Arnardóttir hjúkrunarfræðingur.

Fundurinn verður í sal Vistor, Hörgatúni 2 Garðabæ og hefst kl. 20:00. Við stefnum á að vera bæði á Zoom og senda út í umræðuhópnum en það væri frábært að sjá sem flesta í sal 🙂

CCU – hagsmunasamtök einstaklinga með Crohn’s sjúkdóm (svæðisgarnabólgu) og Colitis Ulcerosa (sáraristilbólgu).

Upplýsingar

Dagsetning:
06.10.2022
Tími:
20:00 - 21:30
Viðburðir Flokkur:
Vefsíður:
ccu.is

Skipuleggjandi

CCU samtökin