Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Fræðslufundur Egilsstöðum – ADHD og lyf

03.05.2023 @ 20:00

ADHD og lyf – fræðslufundur á Egilsstöðum, 3. maí kl. 20:00

Reglulega kemur upp umræða um lyfjanotkun tengda ADHD, sú umræða er því miður oft byggð á takmörkuðum og eða röngum upplýsingum. Ennfremur skortir marga upplýsingar til þess að greina hvort ADHD lyf eigi við þau sjálf í þeirra aðstæðum. Á fræðslufundinum mun Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna fara yfir virkni helstu lyfja sem eru notuð vegna ADHD, ræða um mögulegar aukaverkanir og reyna að svara helstu spurningum sem brenna á vörum fundargestum.

Fundurinn fer fram í fyrirlestraraðstöðu Menntaskólans á Egilsstöðum, 3. maí klukkan 20:00. og er opinn öllum.

Hægt er að skrá sig á Facebook viðburð fundarins hér – Facebook viðburður.

Hægt er að ganga í ADHD samtökin hér: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

Verið velkomin á fræðslufundinn!

Upplýsingar

Dagsetning:
03.05.2023
Tími:
20:00
Viðburðir Flokkur: