Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Fræðslufundur maí 2023 [áhugavert @Alzheimersamtökin]

02.05.2023 @ 16:30 - 17:30

Fræðslufundur maí mánaðar fjallar um réttindi fólks með heilabilun og fyrirlesarinn er Ásta Kristín Guðmundsdóttir félagsráðgjaf. Aðeins um Ástu Kristínu; hún er félagsráðgjafi í Seiglunni og útskrifaðist með meistarapróf í félagsráðgjöf í júní 2012. Ásta Kristín vann sem félagsráðgjafi á Landakoti og þar á meðal á heilabilunareiningu Landakots, bæði innlagnardeild og á Minnismóttöku. Hún hefur haldið kynningarfyrirlestra fyrir Alzheimersamtökin um heilabilun og mikilvægi samskipta. Einnig tekið þátt í fræðsludagskrá Alzheimersamtakanna með öðrum fagstéttum af Minnismóttöku Landakots þar sem aðstandendur fengu fræðslu um heilabilun, þjónustu heim, úrræði og hjálpartæki. Ásta Kristín hefur einnig starfað á geðsviði og í dag starfar hún sem teymisstjóri heimastuðnings hjá Reykjavíkurborg.

Upplýsingar

Dagsetning:
02.05.2023
Tími:
16:30 - 17:30
Viðburðir Flokkur:

Vettvangur

Lífsgæðasetur St. Jósepsspítala
Suðurgata 41
Hafnarfjörður, 220 Iceland
+ Google Map