Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Fræðsluröð ÖBÍ – Jákvæð vinnustaðamenning og fagleg samskipti

7. maí @ 13:00 - 15:00

Jákvæð vinnustaðamenning og fagleg samskipti

Tveggja klukkustunda námskeið verður haldið fimmtudaginn 7. maí kl. 13:00-15:00 í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42 þar sem sjónum verður beint að því hvernig byggja má upp jákvæða vinnustaðamenningu og efla fagleg samskipti í daglegu starfi.

Námskeiðið er ætlað starfsfólki aðildarfélaga ÖBÍ sem vill styrkja eigin færni í samskiptum og leggja sitt af mörkum til betra starfsumhverfis.

Markmið námskeiðsins
Að auka meðvitund um mikilvægi góðrar vinnustaðamenningar og faglegra samskipta, sem og hlutverk hvers og eins í að skapa jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi.

Efnistök

  • Jákvæð vinnustaðamenning
  • Fagleg hegðun á vinnustað
  • Samskiptastílar og áhrif þeirra
  • Leiðir til að styrkja faglega hegðun
  • Endurgjöf og viðbrögð við krefjandi samskiptum

Leiðbeinendur koma frá AUKA – mannauði og stjórnendaráðgjöf, sem er fyrirtæki á sviði mannauðsstjórnunar í eigu Guðrúnar Jóhönnu Guðmundsdóttur og Hildar Halldórsdóttur. Þær búa yfir áralangri reynslu og sérþekkingu á mannauðsmálum.

Nauðsynleg er að skrá þátttöku HÉR í gegn um skráningarform: Jákvæð vinnustaðamenning og fagleg samskipti – ÖBI og vinsamlegast takið fram ef óskað er eftir táknmáls- eða rittúlkun.

ÖBÍ ber allan kostnað af námskeiðshaldinu.

Nánari upplýsingar má finna á www.auki.is.

 

Upplýsingar

  • Dagsetning: 7. maí
  • Tími:
    13:00 - 15:00
  • Viðburðir Flokkur: