Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Morgunbollinn – „Hvað ef“ skemmtifræðsla

7. maí @ 10:00 - 11:00

Verið velkomin í Morgunbollann 7. maí kl. 10:00-11:00 í Mannréttindahúsinu.

Gunnar Sigurðsson og Guðmundur Ingi Thorvaldson koma ásamt Kristni Óla (Króla), Davíð Þór og Helgu Salvör til að kynna verkefnið „Hvað ef“ skemmtifræðsla.

„Hvað ef“ er skemmtifræðsla sem gekk í 10 ár og var sýnd fyrir um 45.000 ungmenni á aldrinum 13–16 ára. Verkefnið fjallar um þær áskoranir sem ungmenni standa frammi fyrir og leggur áherslu á mikilvægi þess að taka skynsamlegar ákvarðanir og fresta því að hefja hvers konar fíknihegðun.

Ekkert sambærilegt verkefni hefur verið í gangi síðustu 10 ár. Í tilefni af 50 ára afmæli SÁÁ var leitað til Guðmundar og Gunnars um að endurvekja verkefnið.

Nýr leikhópur hefur nú verið valinn og undirbúningur hafinn. Hluti af þeirri vinnu felst í því að afla upplýsinga um stöðu og veruleika ungmenna í dag.

Stefnt er að frumsýningu verkefnisins í janúar 2027.

Það er mikilvægt fyrir verkefnið að byggja upp sterk tengsl við fagfélög, samtök og stofnanir sem starfa að málefnum ungmenna og er heimsókn í Mannréttindahúsið mikilvægur liður í þeirri vinnu.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Upplýsingar