Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Mannréttindamorgunn – Mannréttindastofnun Íslands

13. nóvember @ 09:30

María Sigurðardóttir framkvæmdastjóri nýrrar Mannréttindastofnunar Íslands fjallar um nýja stofnun, hlutverk hennar og mikilvægi í samfélaginu í Mannréttindahúsinu fimmtudaginn 13.  nóvember kl. 9:30.

Margrét á að baki langan feril sem stjórnandi stofnana sem vinna að aukinni velferð borgaranna, meðal annars gengdi hún starfi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu, var Umboðsmaður barna og forstjóri Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón og heyrnaskerðingu. Hún lauk embættisprófi í lögfræðingi frá Háskóla Íslands, kennsluréttindanámi frá Háskólanum á Akureyri og MBA gráðu frá University of the Highlands and Islands í Skotlandi með áherslu á mannréttindi.

Mannréttindastofnun Íslands er sjálfstæð stofnun sem tók til starfa þann 1. maí 2025 sl. og starfar á vegum Alþingis samkvæmt lögum nr. 88/2024. Meginhlutverk stofnunarinnar er að efla og vernda mannréttindi á Íslandi.

Upplýsingar