- This event has passed.
Mannréttindamorgunn: Raddir sem rekast á veggi – hindranir í kerfinu og leiðir til úrbóta

ÖBÍ réttindasamtök, Endósamtökin, feminíska fötlunarhreyfingin Tabú og Tilvera standa fyrir viðburði þar sem sjónum er beint að hindrunum og brotalömum í kerfinu, en aðallega að því hvernig megi ryðja þeim úr vegi.
Endósamtökin sýna myndband sem þau framleiddu um reynslu kvenna af brotalömum í heilbrigðiskerfinu. Tabú býður velkomna Eliona Gjecaj, sem vinnur við rannsóknir á fötluðum konum og ofbeldi, en nýjasta grein hennar fjallar um reynslu kvenna með fötlun á Íslandi og skort á tilkynningum af þeirra hálfu en Sigríður Auðunsdóttir frá Tilveru verður einnig með erindi.
Í kjölfar erindanna taka við pallborðsumræður þar sem sérfræðingar og reynsluraddir ræða lausnir, ábyrgð og næstu skref. Markmiðið er að varpa ljósi á kerfislægar hindranir, skapa samtal og ýta undir raunverulegar umbætur. Viðburðurinn er upphitun fyrir 8. mars, sem er alþjóðadagur kvenna.
Hluti viðburðarins fer fam á ensku en verður rittúlkaður.




