Pöbbkviss UngÖBÍ

UngÖBÍ býður ungu fólki á aldrinum 20-35 ára í pöbbkviss í Stúdentakjallaranum laugardaginn 28. mars kl. 20:00
Snillingarnir í Pubquizplebbunum ætla að stjórna fjörinu og verðlaun verða veitt fyrir fyrsta til þriðja sætið! Leikið er í þriggja manna liðum en engin þörf að mæta á staðinn með fullskipað lið, bara að mæta með góða stemningu og dass af keppnisskapi.
Ekki hika við að hafa samband í gegnum netfangið kjartan@obi.is ef þið viljið óska eftir táknmálstúlki, aðstoð við að rita svör eða ef þið eruð með einhverjar spurningar.




