Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Samráðsþing: Landsáætlun um innleiðingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

16.02.2023 @ 13:00 - 17:00

Samráðsþing fer fram í Hörpu þann 16. febrúar um landsáætlun um innleiðingu á samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið ásamt forsætisráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, ÖBÍ réttindasamtökum, Landssamtökunum Þroskahjálp og Geðhjálp standa fyrir fundinum sem er öllum opinn.
Á þinginu verður leitast við að greina tækifærin fram undan og hvað skipti máli þegar horft sé til framtíðar. Þá munu vinnuhópar við gerð landsáætlunar kynna tillögur að aðgerðum. Fundarstjóri er Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Þátttaka er gjaldfrjáls en skrá þarf þátttöku fyrir fram og er það gert á vefnum https://frn.is
Einnig er hægt að líma þessa slóð beint inn í vafra: bit.ly/3llCUHG
DAGSKRÁ
13.05–13.15
Ný framtíð, tækifærin fram undan
– Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra
13.15–13.25
Staða samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
– Elísabet Gísladóttir, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu
13.25–13.40
Gerð landsáætlunar – hvað höfum við lært og hvers má vænta?
– Þór Garðar Þórarinsson, verkefnastjóri landsáætlunar
13.40–13.45
Áherslur sveitarfélaga – hvað skiptir máli þegar horft er til framtíðar?
– Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
13.45–14.00
Áherslur hagsmunaaðila – hvað skiptir máli þegar horft er til framtíðar?
– Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka
– Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
– Elín Ebba Ásmundsdóttir, varaformaður Geðhjálpar
14.00–14.25
Verkfæri nýsköpunar inn í framtíðina: Áhrif tæknibreytinga, hver verða áhrif þeirra á velferðarþjónustu?
– Ólafur Andri Ragnarsson, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík
– Karl Friðriksson, framtíðarfræðingur
– Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Klak Icelandic Startups
14.25–14.40
Hlé
14.40–15.00
Ertu með hugmynd sem gæti breytt heiminum?
– Hinrik Jósafat Atlason, framkvæmdastjóri og stofnandi Atlas Primer
15.00–15.15
Nokkrar kveikjur
– Elva Dögg Gunnarsdóttir, uppistandari
15.15–16.15
Stöðumat
– Vinnuhópar við gerð landsáætlunar kynna tillögur að aðgerðum
16.15–16.30
Viðbrögð, speglun úr sal, forgangsröðun tillagna
– Þátttakendur á samráðsþinginu leggja sitt af mörkum
16.30–16.40
Lausnagallerí
– Örkynningar á verkefnum sem gætu haft áhrif
16.40–16.50
Undirritun samstarfsyfirlýsingar um verklag við gerð landsáætlunar til 2030
16.50
Léttar samkvæmisæfingar
– Þátttakendur á þinginu lyfta sér upp með góðum veitingum og tónlist

Upplýsingar

Dagsetning:
16.02.2023
Tími:
13:00 - 17:00
Viðburðir Flokkur:

Vettvangur

Harpa
Austurbakka 2
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
Skoða Vettvangur Vefsíðu