Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Taktu stjórnina – Fræðslunámskeið fyrir fullorðna [@ADHD samtökin]

31.10.2023 @ 17:00 - 21.11.2023 @ 17:00

  • Skráning er hafin á hið sívinsæla fræðslunámskeið ADHD samtakanna – Taktu stjórnina! sem verður haldið á þriðjudögum 31. október., 7., 14., og 21. nóvember (sjá nánar töflu hér fyrir neðan) Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir – fjögur skipti, 2 og 1/2 klukkukstund í senn frá kl. 17:00 – 19:30 alla dagana.
  • Fjöldi þátttakenda er takmarkaður – fyrstur kemur, fyrstur fær!

Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti:

  • Skilningur á ADHD og ólík einkenni
  • Algengir fylgikvillar
  • Að sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði
  • Markmiðasetning
  • Félagsleg samskipti almennt
  • Vinna og nám
  • Fjármálastjórn
  • Heimilið
  • Foreldrahlutverkið og samskipti við maka
  • Heilbrigt líferni

Markmið námskeiðsins:

  • Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.

Námskeiðið verður að haldið í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og þroskaþjálfi.

Skipulag:

1. tími 31. október þriðjudagur kl. 17:00 – 19:30
2. tími 7. nóvember þriðjudagur kl. 17:00 – 19:30
3. tími 14. nóvember þriðjudagur kl. 17:00 – 19:30
4. tími 21. nóvember þriðjudagur kl. 17:00 – 19:30

Námskeiðsverð:

39.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna 
44.000 kr fyrir aðra

Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, „Leyndardómar heilans – Láttu verkin tala“ sem kostar 5.900 kr. ein og sér.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

Fyrir frekari upplýsingar og til að skrá sig smellið hér

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is

Upplýsingar

Start:
31.10.2023 @ 17:00
End:
21.11.2023 @ 17:00
Viðburðir Flokkur:

Vettvangur

Háaleitisbraut 13
Háaleitisbraut 13
Reykjavík, Iceland
+ Google Map