Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Alþjóðleg afmælisráðstefna ADHD samtakanna á Grand hótel

26.10.2023 - 27.10.2023

Alþjóðleg afmælisráðstefna ADHD samtakanna á Grand hótel

ADHD samtökin í samstarfi við ADHD Europe standa fyrir tveggja daga alþjóðlegri afmælisráðstefnu um ADHD sem nefnist „Betra líf með ADHD“ . Ráðstefnan fram fer á Grand Hótel Reykjavík dagana 26. og 27. október 2023.

Markmið ráðstefnunnar er að vekja athygli á áskorunum sem einstaklingar með ADHD glíma við ásamt því að kynna ýmsar lausnir til að takast á við afleiðingar hennar. Kunnir erlendir og íslenskir fyrirlesarar halda erindi og umfjöllunarefnin snerta málefni barna, ungmenna og fullorðinna einstaklinga. Meðal fyrirlesara eru Ari Tuckman, sálfræðingur og kynlífsráðgjafi, Kathleen Nadeau, sálfræðingur, Saaskia van der Oord, prófessor í sálfræði, Amori Yee Mikami, prófessor í sálfræði, Lachenmeier, geðlæknir og Dr. Sandra Koji, geðlæknir. Jafnframt verða kynntar til sögunnar nýjar íslenskar rannsóknir um ADHD. Ráðstefnan gagnast bæði fullorðnum, kennurum og öðru fagfólki.

Veitingar í boði.

Rauntímatúlkun frá ensku yfir á íslensku og öfugt.

Boðið verður upp á streymi fyrir þátttakendur sem ekki eiga heimangengt.

Almennt verð: 24.900-
Félagsmenn 19.900.-

Dagskrá má finna hér.

Upplýsingar

Start:
26.10.2023
End:
27.10.2023
Viðburðir Flokkur:

Vettvangur

Grand Hótel Reykjavík
Sigtún 38
Reykjavík, 105
+ Google Map