Föstudaginn 17. október frá kl. 13 til 14:30 bjóða EAPN á Íslandi og Kjarahópur ÖBÍ til fundar undir yfirskriftinni Upprætum fátækt! Fundurinn verður haldinn í Borgarbókasafninu Grófinni, Tryggvagötu 15.
- Stutt erindi um alþjóðlegan baráttudag gegn fátækt: Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður EAPN á Íslandi
- Kynning á fræðsluprófi um fátækt : Sigríður Hanna Ingólfsdóttir, starfsmaður kjarahóps ÖBÍ
- Er fátækt á Íslandi? Birtingarmyndir fátæktar í rannsóknum Vörðu, Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins. Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu.
- Kynning á átaksverkefni um örsögur: Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður EAPN á Íslandi
- Jöfn tækifæri fyrir öll börn, undirbúningur að aðgerðaráætlun gegn barnafátækt: Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra.
Fundurinn verður rittúlkaður – Veitingar og spjall – Örsögur verða lesnar á milli atriða – Aðgangur ókeypis – Öll velkomin – Hlökkum til að sjá þig!
» Facebook viðburðurinn