- This event has passed.
Hvað ætla ég að kjósa?

Átak býður þér á mál-þing um
kosningar um að hefja aftur aðildar-viðræður við Evrópu-sambandið.
Hvað?
Fólkið í Átaki ætlar að spjalla um kosningarnar sem framundan eru,
en þann 29. ágúst nk. á að kjósa um
hvort hefja eigi aftur aðildar-viðræður við Evrópu-sambandið (ESB).
Við fáum gesti frá tveimur samtökum.
Fólk frá Evrópu-hreyfingunni
segir okkur
hvers vegna þau ætla að kjósa já.
Fólk frá Heimssýn
segir okkur
hvers vegna þau ætla að kjósa nei.
Þú getur:
hlustað á báðar hliðar,
spurt spurninga
og ákveðið hvað þú ætlar að kjósa
Öll eru velkomin í Mannréttindahúsi – Sigtún 42.
Málþingið er samstarfs-verkefni Átaks, Fjölmenntar og ÖBÍ réttindasamtaka.




