Morgunbollinn – Jóga í daglegu lífi

Heitt á könnunni frá kl. 9:30. Fyrirlestur hefst kl. 10:00.
Uppgötvaðu hvernig örfáar mínútur á dag geta haft raunveruleg áhrif. Langar þig að hreyfa þig meira og finna meiri ró án þess að þurfa að mæta sérstaklega í ræktina eða þurfa hafa þig til?
Á þessum viðburði lærir þú hvernig innleiða má jógahugsun, einfaldar hreyfingar og öndun inn í daglega rútínu – heima, í vinnunni eða hvar sem er. Áhersla er á stuttar, áhrifaríkar æfingar sem draga úr stífleika, styðja við bakið og róa taugakerfið.
Engin fyrri reynsla nauðsynleg – og enginn sérstakur klæðnaður.
Leiðbeinandi: Ásta Þórarinsdóttir er eigandi Yoga&Heilsu með víðtæka jógamenntun (200 RYT, Hatha og yin) og kennararéttindi í meðgöngu- og eftirmeðgöngujóga, auk sérþekkingar á hreyfingu og kvenheilsu.
Hún hefur sjálf glímt við bakverki og leggur áherslu á reglulega, einfalda iðkun sem styrkir líkama og róar sál.




