Skip to main content
AðildarfélögFréttHeilbrigðismál

Undanþága fyrir blóðskilunarsjúklinga frá hámarksdvalartíma á sjúkrahótelum

Merki Nýrnafélagsins

Fólk sem þarf vikulega að sækja blóðskilunarmeðferð fjarri sínu bæjarfélagi hefur fengið undanþágu frá takmörkunum á dvalartíma á sjúkrahóteli á meðan meðferð stendur yfir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Nýrnafélaginu.

Reglugerð um dvöl á sjúkrahóteli hefur verið breytt til að tryggja greiðan aðgang blóðskilunarsjúklinga að sjúkrahótelum. þetta hefur verið eitt af baráttumálum Nýrnafélagsins. Samkvæmt fyrri reglum var hámarkstími dvalar á sjúkrahóteli 21 dagur á 12 mánaða tímabili. Nú hafa sjúklingar sem þurfa á blóðskilun að halda fengið undanþágu frá þessu ákvæði.

Hér má sjá fréttatilkynningu frá Nýrnafélaginu:

Nýrnafélagið kynnir með stolti breytingu sem gerð hefur verið á reglugerð 429/2019 um dvöl á sjúkrahóteli.

Eitt af baráttumálum Nýrnafélagsins hefur verið að blóðskilunarsjúklingar hafi alltaf greiðan aðgang að sjúkrahótelum eða ígildi þeirra þegar þeir þurfa að fara um langan veg í blóðskilun.

Í kjölfarið á því að félagið benti Heilbrigðisráðuneytinu á það misræmi sem var á milli veruleika félaga Nýrnafélagsins og reglna um hámarksdvöl á sjúkrahótelum hefur reglugerð 429/2019 um dvöl á sjúkrahóteli  um sjúkrahótel verið breytt og eftirfarandi klausa komin inn:

„Þurfi einstaklingur á reglubundinni og lífsnauðsynlegri læknismeðferð á sjúkrahúsi að halda til langs tíma svo sem blóðskilunarmeðferð, fjarri heimili sínu og þarf af þeirri ástæðu að dvelja á sjúkrahóteli er heimilt að veita honum undanþágu frá hámarksdvalartíma skv. 2. mgr. Beiðni um undanþágu skal berast Sjúkratryggingum íslands frá lækni eða hjúkrunarfræðingi og metur stofnunin hvort einstaklingur uppfylli skilyrði til undanþágu.“

https://island.is/gistinattathjonusta-sjukrahotel

Sjúkratryggðir einstaklingar geta átt rétt á gistiþjónustu þegar þeir þurfa að dvelja fjarri heimili sínu vegna heilbrigðisþjónustu.

Breytingin felur það í sér að einstaklingar sem þurfa vikulega á lífsgefandi blóðskilunarmeðferð að halda fjarri sínu bæjarfélagi þurfa ekki lengur að una takmörkunum á dvalartíma á sjúkrahóteli meðan á meðferð stendur. Fyrir breytinguna var hámarkstími dvalar á sjúkrahóteli 21 dagur á 12 mánaða tímabili en nú er komin undanþága frá þessum takmörkunum fyrir sjúklinga sem þurfa á blóðskilun að halda.

Fyrir hönd stjórnar Nýrnafélagsins starfsárið 2022-2023

Guðrún Barbara Tryggvadóttir

Framkvæmdastjóri Nýrnafélagsins