
SILJA
Nýtt komugjald fyrir sjúkra-, iðju- og talþjálfun mun hafa mest áhrif á þá sem reiða sig hvað mest á þessa þjónustu. ÖBÍ hefur áhyggjur af því að aukinn kostnaður leiði til þess að fólk fresti eða sleppi nauðsynlegri meðferð, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir einstaklinga og aukið kostnað samfélagsins til lengri tíma litið.
Viðtal á Sýn og frétt á Vísi við Vilhjálm Hjálmarsson varaformann ÖBÍ.
Í umsögn frá Málefnahópi ÖBÍ um heilbrigðismál kemur fram að þau „lýsi yfir miklum vonbrigðum með áform ríkisstjórnarinnar varðandi aukna greiðsluþátttöku í heilbrigðisþjónustu. Miklar vonir voru bundnar við að ný ríkisstjórn myndi lækka álögur á fólk sem sækir heilbrigðisþjónustu, en þess í stað hefur núverandi ríkisstjórn aukið þær álögur.“

