
PEXELS
Málefnahópur ÖBÍ réttindasamtaka um heilbrigðismál samþykkti á fundi sínum ályktun um hærri heilbrigðiskostnað öryrkja og aukinn ójöfnuð í aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Hópurinn telur að nýlegar breytingar á lögum um sjúkratryggingar muni auka kostnað öryrkja og fatlaðs fólks.
Ályktun um hærri heilbrigðiskostnað öryrkja og ójöfnuð 19.06.2026
Fyrir stuttu síðan var samþykkt á Alþingi frumvarp heilbrigðisráðherra varðandi breytingar á lögum um sjúkratryggingar. Frumvarpið innihélt nokkrar jákvæðar breytingar, m.a. að í samningsleysi væri óheimilt að leggja aukagjöld á sjúklinga og að fylgdarmaður fatlaðs einstaklings þarf ekki að greiða fyrir flutning á milli sjúkrahúsa.
Heilbrigðishópur ÖBÍ gagnrýnir harðlega að undanskilja komugjöld í nýju lögnunum í almenna greiðsluþátttökukerfinu. Þar með mun ójöfnuður í aðgengi að heilbrigðisþjónustu aukast og var hann þó ærinn fyrir. Það er óásættanleg niðurstaða. Ljóst er að kostnaður fatlaðs fólks og öryrkja vegna þjónustu sjúkraþjálfara mun hækka töluvert. Dæmi er um öryrkja sem fer einu sinni í viku til sjúkraþjálfara til að viðhalda virkni og vinnugetu og greiðir í hvert sinn komugjald. Fram að þessari lagabreytingu var komugjald hluti af greiðsluþátttökukerfinu sem gerði fólki kleift að ná fyrr upp í hámarksþak greiðsluþátttöku. Hér verður breyting á. Nú þarf viðkomandi öryrki að greiða sérstakt komugjald sem verði um 1.000 kr. (hugmynd heilbrigðisráðuneytis) og gjaldið utan greiðsluþátttökukerfis. Komugjald sem nemur 1.000 kr. á viku til sjúkraþjálfara verður 4.000 kr. á mánuði eða um 48.000 kr. á ári.
Með þessum breytingum er verið að auka heilbrigðiskostnað hjá öryrkjum og fötluðu fólki. Aðgerðin gengur gegn því markmiði að auka aðgengi að heilbrigðisþjónustu, sem í tilfelli fatlaðs fólks er lykill að því að geta lifað mannsæmandi lífi sem og að geta verið virkur á vinnumarkaði. Unnið er því gegn hagsmunum öryrkja og fatlaðs fólks. Til viðbótar hafa öryrkjar ekki möguleika á að fá hluta þessa kostnaðar endurgreiddan úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga.
Heilbrigðishópur ÖBÍ í samstarfi við HÍ lét framkvæma könnun um lífskjör og heilbrigðisþjónustu á Íslandi haustið 2025. Helstu niðurstöður könnunar voru eftirfarandi:
- Heilsufar fólks með örorku er marktækt verra en meðal almennings
- Þriðjungur fólks með örorku hefur frestað því að fara til læknis
- Fólk með örorku nýtir heilbrigðisþjónustu oftar en aðrir. Þau fara oftar til heimilislækna, sérgreinalækna, sjúkraþjálfara og sálfræðinga en aðrir hópar í samfélaginu
- Fólk með örorku ber að jafnaði hærri kostnað vegna heilbrigðisþjónustu en aðrir í ljósi lægri tekna og þörf fyrir meiri heilbrigðisþjónustu hjá öryrkjum
- Fólk með örorku hefur meiri lyfjakostnað en aðrir, en þriðjungur þeirra greiða yfir 80.000 kr. eða meira á ári fyrir lyf samkvæmt lyfseðli
- Fólk með örorku greiðir meir fyrir sjúkraþjálfun en aðrir og þau eru líklegri til að greiða 80.000 kr. eða meira fyrir sjúkraþjálfun á ári
- Fólk með örorku ber tvöfalda byrði. Þeir glíma við lakara heilsufar og meiri þörf fyrir þjónustu, en þurfa jafnframt að standa undir meiri útgjöldum úr eigin vasa.
Ofangreindar niðurstöður eru í samræmi við niðurstöður sömu könnunar sem var framkvæmd haustið 2023.
ÖBÍ lýsir yfir miklum vonbrigðum með áform ríkisstjórnarinnar varðandi aukna greiðsluþátttöku í heilbrigðisþjónustu. Miklar vonir voru bundnar við að ný ríkisstjórn myndi lækka álögur á fólk sem sækir heilbrigðisþjónustu, en þess í stað hefur núverandi ríkisstjórn aukið þær álögur. Fyrir utan ofangreindar breytingar munu sjúklingar þurfa að greiða fyrir komu sjúkrabíls án þess að sjúklingur hafi verið fluttur á sjúkrahús. Þetta kemur sér illa fyrir hóp öryrkja t.d. í tilfelli flogaveikra en þegar þau fá flogakast er oft annar aðili sem hringir á sjúkrabíl, án þess að þjónustu hans sé þörf og viðkomandi sjúklingur situr uppi með kostnað við komu sjúkrabílsins. Til viðbótar hefur ríkisstjórnin hækkað lyfjakostnað fólks mikið, t.d. með aftengingu kerfis varðandi hámarkskostnað í greiðsluþátttökukerfi lyfja, þegar sjúklingur verður krafinn um að greiða kostnað við umfram skammt af lyfjum, m.v. hámarksskammt skv. markaðsleyfi. Jafnframt hækkaði ríkisstjórnin síðasta haust hámark upphæðar í greiðsluflokkum í greiðsluþátttökukerfi lyfja. Nam hækkunin í sumum tilfellum um 36%. Það er með öllu ásættanlegt.
ÖBÍ harmar þá viðleitni ríkisstjórnarinnar að leita dýpra í vasa öryrkja og fatlaðra til að fjármagna heilbrigðiskerfið, þegar sá hópur stendur einna veikast í íslensku samfélagi hvað varðar tekjur og fjárhagslega stöðu.
F.h. Heilbrigðishóps ÖBÍ
Telma Sigtryggsdóttir formaður
Gunnar Alexander Ólafsson
Hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka

