Málefnahópar ÖBÍ - á auðlesnu máli
Hvað eru málefna·hópar ÖBÍ?
ÖBÍ er með 6 málefna·hópa.
Málefna·hóparnir reyna að breyta samfélaginu.
Málefna·hóparnir vinna að jöfnum tækifærum fyrir alla.
Málefna·hóparnir segja til dæmis
- hvernig má bæta líf fatlaðs fólks
- hvaða reglum þarf að breyta
- hvað aðrir geta gert fyrir fatlað fólk.
Fólkið í málefna·hópunum er kallað: fulltrúar.
Þetta eru málefna·hóparnir
Hver málefna·hópur berst fyrir ákveðnum málefnum.
Aðgengishópur berst fyrir betra aðgengi að:
- byggingum
- samgöngum
- þjónustu
- upplýsingum
- náttúrunni.
Atvinnu- og menntahópur berst fyrir:
- fleiri störfum fyrir fatlað fólk
- fleiri tækifærum í menntun fyrir fatlað fólk.
Barnamála·hópur berst fyrir réttindum fatlaðra barna.
Heilbrigðis·hópur berst fyrir betri heilbrigðis·þjónustu
fyrir fatlað fólk.
Húsnæðis·hópur berst fyrir:
- að fatlað fólk geti búið lengi á sama stað
- að fatlað fólk geti valið sér húsnæði
- að fatlað fólk geti keypt sér húsnæði.
Kjarahópur berst fyrir betri kjörum fyrir fatlað fólk.
Betri kjör þýðir til dæmis að:
- fatlað fólk sé ekki fátækt
- fatlað fólk geti lifað á sínum eigin peningum.
Hvernig vinna málefna·hópar ÖBÍ?
Hver málefna·hópur vinnur að sínum málum.
Málefna·hóparnir hafa til dæmis þau verkefni að:
- Vinna eftir samningi Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðs fólks. - Vinna gegn fordómum.
- Fordómar eru rangar hugmyndir um fatlað fólk.
- Gera fatlað fólk sýnilegra í samfélaginu.
- Til dæmis með því að mæta í fjölmiðla.
Fjölmiðlar eru til dæmis:
- sjónvarp
- útvarp
- fréttasíður á netinu.
- Vinna að jafnrétti fyrir alla.
- Vinna gegn ójafnrétti.
- Segja frá því sem málefna·hóparnir gera.
- Til dæmis í fjölmiðlum.
- Fylgjast með því sem stjórnvöld gera.
- Stjórnvöld eru til dæmis:
- Alþingi
- sveitarfélög.
- Segja stjórnvöldum frá lífi fatlaðs fólks.
- Koma með hugmyndir um hvernig má breyta lögum.
- Segja sína skoðun þegar það á að breyta lögum.
- Taka þátt í ráðum.
- Taka þátt í nefndum.
Fulltrúar
Fólkið í málefna·hópunum er kallað: fulltrúar.
Fulltrúar þurfa að:
- taka þátt í málefna·hópunum
- hafa tíma
- hafa áhuga
- vita mikið um málefnið
- hafa reynslu af málefninu
- vera ólíkir.
Fulltrúar koma úr aðildarfélögum ÖBÍ.
Aðildarfélag er félag sem er hluti af stærra félagi.
ÖBÍ er stóra félagið.
Í ÖBÍ eru 43 aðildarfélög.
Til dæmis:
- Félag heyrnarlausra
- Einhverfu·samtökin
- HIV Ísland.
Hvað þurfa málefna·hóparnir?
Málefna·hóparnir eiga að vinna vel.
Þess vegna þurfa málefna·hóparnir:
- skýra áætlun
- skýrar reglur
- góðar leiðbeiningar
Fulltrúar þurfa að þekkja samning Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðs fólks.
Málefna·hóparnir geta unnið saman.
Málefna·hóparnir geta talað við aðildarfélögin.
Málefna·hóparnir geta talað við önnur félög.
Samtal
Málefna·hóparnir þurfa að geta talað við:
- sérfræðinga sem þekkja málefnin
- stjórnvöld
- fjölmiðla.
Málefna·hóparnir þurfa að fylgjast með samfélags·miðlum.
Málefna·hóparnir þurfa pening til að:
- halda fundi
- halda ráðstefnur
- kynna málefnin.
Stuðningur
Málefna·hóparnir þurfa stuðning frá:
- starfsfólki ÖBÍ
- stjórn ÖBÍ
- hinum málefna·hópunum
- aðildarfélögunum.
Hvað gerir formaður málefna·hóps?
Formaður stjórnar málefna·hópnum.
Formaður þarf að virða annað fólk í málefna·hópnum.
Formaður málefna·hóps er í stjórn ÖBÍ.
Formaður passar að hópurinn vinni vel.
Vinnan á að passa við það sem ÖBÍ hefur ákveðið.
Vinnan á líka að passa við samning Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðs fólks.
Samskipti
Formaður sér um samskipti fyrir málefna·hópinn.
Til dæmis við:
- stjórn ÖBÍ
- starfsmann málefna·hópsins
- stjórnvöld með starfsmanni málefna·hópsins
- aðra fulltrúa í málefna·hópnum.
Fundarstjórn
Formaður stjórnar fundum.
Formaður ákveður hvað á að tala um á fundum.
Formaður segir stjórn ÖBÍ frá.
Formaður kemur með skilaboð frá stjórn ÖBÍ.
Verkstjórn
Formaður ákveður hvað er mikilvægast að gera.
Fulltrúar geta sagt formanni sína skoðun.
Formaður á að hlusta.
Formaður lætur fulltrúa fá verkefni.
Upplýsingar
Formaður passar að fulltrúar hafi upplýsingarnar
sem fulltrúarnir þurfa að hafa.
Formaður sér um upplýsingar fyrir aðildarfélögin.
Formaður lætur ÖBÍ fá upplýsingarnar.
ÖBÍ lætur aðildarfélögin fá upplýsingarnar.
Formaður fær upplýsingar frá aðildarfélögum.
Annað
Formaður tekur þátt í að skrifa umsagnir.
Umsagnir eru hugmyndir málefna·hópsins um:
- ný lög á Íslandi
- breytingar á reglum.
Formaður skrifar greinar.
Formaður tekur þátt í nefndum.
Formaður tekur þátt í ráðum.
Formaður undirbýr líka það sem hópurinn gerir.
Til dæmis:
- að halda ráðstefnur
- að halda málþing
- að vera með hlaðvarp
- og margt annað.
Hvað þarf formaður?
Formaður á að vinna vel.
Þess vegna þarf formaður ýmislegt.
Formaður þarf til dæmis að:
- hafa góðar upplýsingar
- fá stuðning frá:
- starfsmanni málefna·hópsins
- stjórn ÖBÍ
- starfsfólki ÖBÍ.
- fá laun
- geta talað við sérfræðinga
- fá peninga til að gera hluti
- fá herbergi til að halda fundi
- geta talað við fulltrúana í málefna·hópnum.
Hvað gerir vara·formaður málefna·hóps?
Vara·formaður kemur í staðinn fyrir formann.
Til dæmis þegar formaður:
- kemst ekki
- er veikur.
Vara·formaður aðstoðar formann.
Vara·formaður þarf að vera virkur í málefna·hópnum
Vara·formaður á að vinna vel.
Þess vegna þarf vara·formaður ýmislegt.
Vara·formaður þarf til dæmis að:
- hafa góðar upplýsingar
- fá stuðning frá:
- starfsmanni málefna·hópsins
- stjórn ÖBÍ
- starfsfólki ÖBÍ.
Hvað gerir starfsmaður málefna·hóps?
Skipulag
Starfsmaður skipuleggur vinnu málefna·hópsins.
Starfsmaður hjálpar nýjum formanni að byrja.
Starfsmaður:
- passar upp á skjöl málefna·hópsins
- skrifar niður hugmyndir málefna·hópsins
- skipuleggur viðburði
- lætur fulltrúa vita hvenær næsti fundur er.
Samskipti
Starfsmaður sér um samskipti við:
- starfsfólk ÖBÍ
Annað
Starfsmaður vinnur verkefni fyrir málefna·hópinn.
Málefna·hópurinn ákveður hvaða verkefni starfsmaður vinnur.
Stundum gerist eitthvað óvænt.
Til dæmis:
- ríkið breytir lögum
- sveitarfélög breyta reglum.
Þá lætur starfsmaðurinn fulltrúana vita.
Hvað gera fulltrúar málefna·hóps?
Fulltrúar vinna með aðildarfélögunum.
Til dæmis þegar aðildarfélag getur hjálpað málefna·hópnum.
Fulltrúar taka þátt í málefna·hópnum.
Stefna
Fulltrúarnir ákveða saman hvað málefna·hópurinn gerir.
Fulltrúarnir passa að málefna·hópurinn geri
það sem er búið að ákveða.
Þetta gera fulltrúar til dæmis með því að:
- koma með hugmyndir
- ákveða saman
- safna upplýsingum
- skrifa greinar.
Þátttaka
Það er mikilvægt að fulltrúarnir taki þátt í málefna·hópnum.
Fulltrúar taka þátt í málefna·hópnum með því að:
- mæta á fundi
- taka þátt í verkefnum
- taka þátt í viðburðum
- kynna málefnin.
Hvað þurfa fulltrúar?
Fulltrúar eiga að vinna vel.
Þess vegna þurfa fulltrúar ýmislegt.
Fulltrúar þurfa til dæmis að:
- geta talað við starfsmann málefna·hópsins
- hafa góðar upplýsingar
- fá herbergi til að halda fundi.
Sumir fulltrúar þurfa aðstoð.
Til dæmis aðstoð frá:
- túlki
- persónulegum aðstoðarmanni.
Vara·fulltrúar
Vara·fulltrúar koma í staðinn fyrir fulltrúa.
Til dæmis þegar fulltrúi:
- kemst ekki
- er veikur.

