Frétt

Aðalfundur ÖBÍ: Óviðunandi skortur á endurhæfingarúrræðum

Stefán Magnússon var kjörinn varaformaður ÖBÍ réttindasamtaka á aðalfundi samtakanna sem haldinn var 2. og 3. október. Stefán er framkvæmdastjóri Gigtarfélags Íslands og tekur við varaformennsku af Vilhjálmi Hjálmarssyni.

Þá var Ingibjörg Elísabet Garðarsdóttir, varamaður í stjórn Endósamtakanna, kjörin gjaldkeri, og tekur hún við af Jóni Heiðari Jónssyni.

Aðalfundurinn ályktaði um stöðu endurhæfingar á Íslandi og má lesa ályktunina í heild hér:

Ályktun aðalfundar ÖBÍ réttindasamtaka 2026

Núverandi staða endurhæfingarlífeyrisþega til að sækja viðeigandi endurhæfingu er óviðunandi. Skortur er á endurhæfingarúrræðum, biðlistar langir og synjanir tíðar, sem dregur úr möguleikum endurhæfingarlífeyrisþega til að endurheimta heilsu og sjálfstæði eftir veikindi eða slys. Slíkt grefur undan meginreglunni um að allir eigi jafnan rétt á aðgengilegri heilbrigðisþjónustu. 

Afleiðingarnar geta leitt til alvarlegs framfærsluleysis og valdið frekari veikindum og skertum lífsgæðum. Slíkt eykur álag á heilbrigðis- og velferðarkerfið, veldur lengri fjarveru frá námi eða vinnu, dregur úr samfélagslegri þátttöku og eykur samfélagslegan kostnað. 

Huga þarf sérstaklega að endurhæfingu í geðheilbrigðismálum sem og annarra jaðarsettra hópa. 

ÖBÍ réttindasamtök krefjast að stjórnvöld grípi án tafa til markvissra aðgerða til að tryggja fullnægjandi framboð endurhæfingar um land allt – öllum til heilla.