Skip to main content
FréttHeilbrigðismálHúsnæðismálKjaramálRéttindabarátta

Svört skýrsla um stöðu fatlaðs fólks á Íslandi

By 5. desember 2023desember 12th, 2023No Comments
Niðurstöður nýrrar rannsóknar Vörðu, rannsóknastofnunnar vinnumarkaðarins og ÖBÍ réttindasamtaka voru kynntar miðvikudaginn 6. desember í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42. 

Helstu niðurstöður

Niðurstöður könnunarinnar sem var lögð fyrir þau sem voru með örorku-, endurhæfingarlífeyrisréttindi eða örorkustyrk hjá TR 1. október 2023 sýna:

  • Ríflega þriðjungur býr við efnislegan skort eða verulegan efnislegan skort
    • Tæplega tveir af hverjum tíu búa við verulegan efnislegan skort eða sárafátækt
  • Tæplega sjö af hverjum tíu geta ekki mætt óvæntum 80.000 kr. útgjöldum án þess að stofna til skuldar
  • Meira en helmingur metur fjárhagsstöðu sína nokkuð eða mun verri en fyrir ári síðan
  • Helmingur þarf að neita sér um og félagslíf vegna fjárhagsstöðu sinnar
    • Fjögur af hverjum tíu þurfa að neita sér um nauðsynlegan klæðnað og næringarríkan mat
  • Slæm fjárhagsstaða kemur í veg fyrir að hægt sé að greiða grunnþætti fyrir börn
    • Tæplega fjögur af hverjum tíu geta ekki greitt kostnað vegna tómstunda, félagslífs eða gefið börnum sínum jóla og/eða afmælisgjafir
  • Fjárhagsstaða einhleypra foreldra með örorkulífeyri, endurhæfingarlífeyri og örorkustyrk er á öllum mælikvörðum verst
    • Ríflega þrjú af hverjum tíu búa við verulegan skort á efnislegum gæðum
    • Tæplega níu af hverjum tíu einhleypum mæðrum geta ekki mætt óvæntum 80.000 kr. útgjöldum án þess að stofna til skuldar
    • Fjórðungur einhleypra mæðra hafa þurft mataraðstoð á síðastliðnu ári
    • Tæplega helmingur einhleypra foreldra geta ekki veitt börnum sínum nauðsynlegan klæðnað eða eins næringarríkan mat og þau vilja né greitt kostnað vegna félagslífs barna sinna eða haldið afmæli eða veislur fyrir börn sín
  • Tæplega helmingur býr við þunga byrði af húsnæðiskostnaði
    • Ríflega sex af hverjum tíu einhleypum foreldrum búa við þunga byrði af húsnæðiskostnaði
  • Sjö af hverjum tíu búa við slæma andlega líðan
    • Hlutfallið er enn hærra meðal einhleypra foreldra en ríflega átta af hverjum tíu búa við slæma andlega heilsu
  • Hátt hlutfall hefur nær daglega hugsað um að það væri betra ef þau væru dáin eða hugsað um að skaða sig
    • Það á við um 15% einhleypra karla, karla á endurhæfingarlífeyri, karla á aldrinum 31-50 ára og kvenna 30 ára og yngri
  • Tæplega sex af hverjum tíu finna fyrir mjög eða frekar mikilli félagslegri einangrun
    • Hæst er hlutfallið meðal karla á endurhæfingarlífeyri
  • Ríflega fjögur af hverjum tíu hafa neitað sér um tannlæknaþjónustu og sálfræðiþjónustu og er algengasta ástæða þess að neita sér um heilbrigðisþjónustu kostnaður
Könnunin var lögð fyrir þann 1. október síðastliðinn. TR sendi póst á 19.331 einstakling og bauð þeim að veita upplýst samþykki fyrir þátttöku í rannsókninni. 
  • 4.480 samþykktu að fá könnun senda
  • 3.585 svöruðu
  • Svarhlutfall: 19%
Markmið könnunarinnar að skoða:
  • Fjárhagsstöðu
  • Stöðu á húsnæðismarkaði
  • Líkamlega og andlega heilsu
  • Aðgengi að heilbrigðisþjónustu
  • Félagslega einangrun og fordóma
  • Stöðu á vinnumarkaði
  • Viðhorf til þjónustu TR

Staða fatlaðs fólks á Íslandi from Sextán-níundu ehf. on Vimeo.