Skip to main content
AlmannatryggingarFréttKjaramálTR

Málþing ÖBÍ: Lásar gera bara gagn – ef þeir eru læstir

By 18. maí 2022júní 6th, 2023No Comments
Málþing kjarahóps ÖBÍ um skerðingar og kjaragliðnun lífeyris almannatrygginga var haldið í gær, 17. maí,  á Grand Hóteli.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ flutti ávarp. Kolbeinn H. Stefánsson, félagsfræðingur og dósent við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands fjallaði um niðurstöður rannsóknarinnar sem hann vann fyrir ÖBÍ, „Lásar gera bara gagn ef þeir eru læstir“. Skýrslan kom fyrst út 2020 en nýlega voru tölfræðigögn uppfærð. Skýrslan [PDF] útg. maí 2022

Varaformaður kjarahóps ÖBÍ, Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, flutti erindið „Hvar er kaupmáttaraukningin mín?“

Félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson,  ávarpaði fundargesti. Einnig héldu erindi: Bergþór H. Þórðarson, varaformaður ÖBÍ, Eva Sjöfn Helgadóttir, varaþingmaður Pírata og Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins. Að því loknu tóku við pallborðsumræður.

Málþingið var vel sótt og því var streymt beint fyrir þá sem ekki höfðu tök á að vera á staðnum. Hægt er að hlusta eða horfa á rittúlkaða upptöku af málþinginu neðst á þessari síðu eða hér  – Sjá einnig umfjöllun RÚV í gær: