Húsnæðishópur
”Fatlað fólk á rétt á að velja sjálft hvar það býr og með hverjum ...
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Tilgangur málefnahópsins er að bregðast við stöðu fatlaðs fólks á húsnæðismarkaði. Langir biðlistar eru eftir félagslegu húsnæði og mjög erfitt hefur verið fyrir fatlað fólk að eignast eigið húsnæði.
Málþing og ráðstefnur
Ungt fólk á endastöð
Fyrsta málþing málefnahópsins var í samstarfi við málefnahóp um heilbrigðismál. Málþingið var haldið á Grand hótel og rafrænt á ZOOM þann 16. mars 2022. Nánari upplýsingar um málþingið er að finna hér

Útgáfa
Hlaðvarp – þakið
Málefnahópurinn tók um hlaðvarpsþátt á vormánuðum 2022 og var það birt á Facebook síðu Örykjabandalagsins þann 12. apríl 2022. Hlaðvarpsþátturinn ber nafnið Þakið og er hluti af samfélagsvaktinni sem er umræðuþáttur ÖBÍ um allt það sem viðkemur réttindabaráttu fatlaðs og langveiks fólks. Fyrsta þátt af Þakinu er hægt að nálgast hér.
Fréttir og umfjöllun
Málefnahópinn skipa
- María Pétursdóttir – MS félagi Íslands – formaður
- Frímann Sigurnýasson – Vífli
- Guðmundur Rafn Bjarnason – Blindrafélaginu
- María Magdalena Birgisdóttir Olsen – Gigtarfélagi Íslands
- Stefán Benediktsson – Heyrnarhjálp
- Tryggvi Axelsson – ADHD samtökunum
- Varamenn: Gunnhildur Hlöðversdóttir – Samtökum lungnasjúklinga og Ingi Hans Ágústsson – HIV samtökunum
Starfsmaður hópsins: Kjartan Þór Ingason. Netfang: kjartan@obi.is