Hinsegin dagar
Við tilheyrum!
Hinsegin fatlað fólk er alls konar og tilheyrir fjölbreyttum hinsegin- og fötlunarhópum sem og samfélaginu í heild sinni. ÖBÍ réttindasamtök og Hinsegin dagar hafa gert með sér samstarfssamning með því markmiði að auka sýnileika hinsegin fatlað fólks og aðgengi þess að hinsegin samfélaginu.
Í ár mun ÖBÍ vera með erindi á Regnboga ráðstefnunni undir yfirskriftinni Í mörgum kössum – Sögur um fötlun, hinseginleikann og mannréttindi, bjóða upp á skiltagerð auk leigubílaþjónustu fyrir þáttakendur ÖBÍ í Gleðigöngunni.
Við hvetjum fatlað fólk til að ganga með okkur 8. ágúst, styðja við mannréttindabaráttu alls hinsegin fólks og vekja athygli á aðstæðum fatlaðs hinsegin fólks.
ÖBÍ verður með vagn í göngunni auk tuk tuk bíla til að létta för þeirra sem eiga erfitt með langar göngur.
Þátttakendum í gönguhópnum verður boðið upp á frábæra boli á meðan að birgðir endast. Merki og hönnun bolanna er unnin af dragdrottningunni Starínu sem er hinsegin fatlaður listamaður og meðlimur í undirbúningshópi ÖBÍ fyrir Hinsegindaga.
Við ætlum að hittast í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, stundvíslega klukkan 12 til að undirbúa okkur og fara samferða að Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar um gönguna, götulokanir auk skráningu í skiltagerð og þáttöku í atriði ÖBÍ í Gleðigöngunni má nálgast í gegnum hlekkina hér að neðan.
Fáni fötlunarstolts
Disability Pride Flag (á ensku)
Fáninn var hannaður til að tákna breidd fötlunarhópsins og minna á að fötlun er fjölbreytt. Fáninn er ekki ætlaður til að flokka fólk í einn kassa. Litirnir tákna ekki nákvæmar greiningar heldur víðtæka flokka fötlunar. Fólk getur tilheyrt fleiri en einum lit samtímis.
• Rauður – líkamlegar fatlanir
Fötlun sem hefur fyrst og fremst áhrif á hreyfigetu, styrk eða líkamlega starfsemi.
• Gulur – taugafjölbreytileiki og vitsmunaþroski
Gullguli liturinn nær bæði yfir taugafjölbreytileika og þroskafrávik. Mörgum finnst þetta vera breiðasti flokkurinn.
• Hvítur – ósýnilegar og ógreindar fatlanir
Þetta eru fatlanir sem sjást ekki endilega við fyrstu sýn eins og mígreni, flogaveiki, langvinnir verkir og sjaldgæfir sjúkdómar.
• Blár – geðrænar og sálfélagslegar fatlanir
Nær yfir geðrænar greiningar sem geta haft veruleg áhrif á daglegt líf.
• Grænn – skynfatlanir
Fötlun sem tengist skynjun og skynfærum eins og skjón- og heyrnaskerðingar, daufblinda, hljóðúrvinnsluröskun.
• Kolgrár eða svartur
Táknar sorg og reiði vegna ableisma, ofbeldis, vanrækslu og þeirra fatlaðra sem hafa látist vegna kerfisbundinnar mismununar eða skorts á stuðningi. Hann táknar einnig baráttu og réttindabaráttu fatlaðs fólks.
Disability Inclusive Progress Pride Flag
Í lauslegri íslenskri þýðingu: Hinsegin framfarafáni með inngildingu fatlaðs fólks.






