
Hinsegindagar.is
„Einstaklingar sem tilheyra fleiri en einum jaðarsettum hópi geta orðið fyrir margþættri mismunun, sem er þegar mismunun á sér stað á grundvelli fleiri en eins félagslegs þáttar.“
ÖBÍ réttindasamtök (ÖBÍ) fagna áformum um þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir tímabilið 2026–2029. Þó að margt hafi áunnist í mannréttindabaráttu hinsegin fólks á Íslandi seinustu áratugi er enn þá langt í land og bakslag síðustu ára undirstrika mikilvægi þess að styðja hinsegin fólk með markvissum aðgerðum og halda baráttunni ótrauð áfram. Hinsegin regnhlífin samanstendur af fjölbreyttum hópi einstaklinga, sum hver tilheyra líka öðrum hópum sem hafa einnig um ára bil þurft að berjast fyrir tilverurétti sínum og jafnrétti í samfélaginu, til að mynda konur, fólk með erlendan bakgrunn og fatlað fólk. Í meginreglum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) sem lögfesta á og verið er að innleiða í íslensk lög, er lögð áhersla á að virða beri sjálfræði og sjálfstæði fatlaðs fólks, þar á meðal rétt þeirra til að taka eigin ákvarðanir. Þá er einnig kveðið á um bann við allri mismunun og mikilvægi þess að sýna skilning og virðingu fyrir margbreytileika fatlaðs fólks. ÖBÍ vill koma eftirfarandi ábendingum og tillögum á framfæri.
Hinsegin fatlað fólk
Í þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022–2025 má finna aðgerð undir verkflokknum rannsóknir, úttektir og kortlagning sem ber heitið líðan hinsegin öryrkja og aldraðra. Þar kemur fram að úttekt verði framkvæmd á líðan hinsegin öryrkja og aldraðra og hún skoðuð út frá samfélagslegum þáttum og því markmiði að jafna stöðu öryrkja og aldraðra í samfélaginu. Hugað verði sérstaklega að líðan og stöðu þessa hóps í samfélaginu og litið til einangrunar og tjáningar. ÖBÍ bendir á að fatlað fólk er fjölbreyttur hópur og ekki allt fatlað fólk eru öryrkjar þó svo að allir öryrkjar séu vissulega fatlað fólk. ÖBÍ leggur til að í nýrri aðgerðaáætlun verði skilgreiningin hinsegin öryrkjar uppfærð í hinsegin fatlað fólk.
Á mælaborði Dómsmálaráðuneytisins um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks kemur fram að vinnan við aðgerðina, líðan hinsegin öryrkja og aldraðra er komin vel á veg. Áreiðanleg og marktæk tölfræðigögn spila veigamiklu hlutverki í mannréttindabaráttu fatlaðs fólks og veitir málflutningi hagsmunasamtaka byr undir báða vængi í samtölum sínum við stjórnvöld. Í dag er aðgengi að hagtölum um fatlað fólk, þar með talið hinsegin fatlað fólk af skornum skammti og því hafa hagsmunasamtök þurft að greiða fyrir kostnaðarsamar rannsóknir til fá empíríska innsýn inn í veruleika fjölbreytta hópa fatlaðs fólks í íslensku samfélagi. ÖBÍ óskar eftir nánari útlistun á framgangi aðgerðarinnar, niðurstöður þeirra úttekta og kortlagninga sem hafa verið framkvæmdar og fyrirætlun stjórnvalda til að ljúka þeirri úttekt sem eftir er.
Margþætt mismunun
Mismunun á grundvelli fötlunar felur í sér hvers kyns útilokun, aðgreiningu eða takmörkun sem byggir á fötlun einstaklings. Hún getur komið fram á öllum sviðum samfélagsins, þar á meðal í efnahags-, félags- og menningarlífi. Einstaklingar sem tilheyra fleiri en einum jaðarsettum hópi geta orðið fyrir margþættri mismunun, sem er þegar mismunun á sér stað á grundvelli fleiri en eins félagslegs þáttar. Mismunun vegna fötlunar, uppruna, kyn, kynhneigðar, kyngervis og kyntjáningar birtist á fjölbreyttan hátt en á það sameiginlegt að leiða til félagslegs óréttlætis, útskúfunar, kerfisbundinnar kúgunar, ójafnrar meðferðar og öráreitni. Þá eru dæmi um að hinsegin fatlað fólk verði fyrir fordómum, aðkasti eða útskúfun innan þeirra hópa sem viðkomandi tilheyrir fyrir að tilheyra fleiri jaðarsettum hópum. ÖBÍ leggur til að stjórnvöld framkvæmi úttekt á birtingarmynd og umfangi margþættra mismunar sem sérstaka aðgerð þar sem jafnframt verði leitast eftir lausnum frá hinsegin fólki sem tilheyra einnig fleiri jaðarsettum hópum.
Aðgengi fatlaðs fólks að hinsegin samfélaginu
Gott aðgengi að samfélagi er grundvallarforsenda virkni og þáttöku fjölbreytra hópa. Í 9. gr. SRFF segir að aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja fötluðu fólki aðgengi, til að gera fötluðu fólki kleift að lifa sjálfstæðu lífi og taka fullan þátt á öllum sviðum lífsins. Þær ráðstafanir eiga meðal annars að tryggja að einkaaðilar, sem bjóða fram aðstöðu og þjónustu sem veitt er eða opin almenningi, taki mið af öllum þáttum aðgengis fatlaðs fólks.
Samtökin ’78 hafa sett sér aðgengisstefnu en þar kemur meðal annars fram að aðgengismál er stórt hugtak sem Samtökin ’78 túlka vítt og vilja ekki einungis tæpa á aðgengi fyrir þau sem nota hjólastól heldur hafa einnig sett sér stefnu um öruggara rými, sem og fylgjast með kynjuðum salernum, hljóðvist, tungumáli, táknmáli og fleira. Jafnframt er fólk hvatt til að koma með ábendingar um það sem betur mætti fara varðandi aðgengismál hjá Samtökunum ’78.
Vert er að taka fram að þó Samtökin’78 gegni mikilvægu hlutverki í réttindabaráttu hinsegin fólks og bjóði upp á fjölbreytt viðburðahald eru margir viðburðir skipulagðir af einstaklingum og smærri hópum fyrir samfélag hinsegin fólks án aðkomu Samtakanna ’78. Erlendar greiningar benda til þess að barir og skemmtistaðir er einn helsti vettvangur þar sem hinsegin samfélagið hittist, sameinist og kynnist öðru hinsegin fólki. Meirihluti íbúðarhúsnæðis á Íslandi er óaðgengilegt fötluðu fólki og vont versnandi fer þegar leitað er eftir aðgengilegum atvinnuhúsnæðum og skemmtistöðum. ÖBÍ leggur til að í aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2026 – 2029 verði upplifun fatlaðs hinsegin fólks á Íslandi um aðgengi að hinseginsamfélaginu könnuð og greind.
ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ
Áform um þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2026 – 2029
Mál nr. S-76/2025. Dómsmálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 1.maí 2025