HúsnæðismálKjaramálUmsögn

Áform um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda (hámarkslánstími verðtryggðra lána)

By 23. október 2026október 29th, 2026No Comments
Loftmynd af Reykjavík

ÖBÍ réttindasamtök telja brýnt að stjórnvöld kanni til hlítar aðgengi fjölbreyttra hópa fatlaðs fólks að húsnæðismarkaði í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF). Fatlað fólk er líklegra en ófatlað fólk til að búa í leiguhúsnæði. Þetta á sérstaklega við þann hóp fatlaðs fólks sem reiðir sig alfarið á örorkulífeyri og hefur takmörkuð sóknarfæri til að vænka hag sinn. Því er mikilvægt að stuðla að öruggri og sanngjarnri umgjörð utan um fyrirkomulag fasteignalána á Íslandi sem er aðgengileg fjölbreyttum hópum fólks. ÖBÍ vill koma eftirfarandi ábendingum á framfæri.

Fatlað fólk og aðgengi að húsnæðislánum

Fatlað fólk á mun erfiðara með að bæta hag sinn, standast lánshæfismat og eignast húsnæði. Samkvæmt rannsókn Vörðu um stöðu fatlaðs fólks kemur fram að einungis 54% fatlaðs fólks býr í eigin húsnæði. Einnig er vert að benda á skýrslu húsnæðishóps ÖBÍ um húsnæðismál fatlaðs fólks, en þar kemur fram að 70% fatlaðs fólks sem býr í eigin húsnæði eignaðist húsnæðið sitt fyrir örorkumat og að hlutdeildarlánakerfið hefur virkað illa fyrir fjölbreytta hópa fatlaðs fólks og þeirra sem reiða sig á lífeyrisgreiðslur almannatrygginga.

Samkvæmt leigumarkaðskönnun HMS kemur fram að 76% svarenda eru leigjendur af nauðsyn. Þrátt fyrir að fleiri leigjendur safni nú fyrir útborgun til íbúðarkaupa sjá fæstir fyrir sér að kaupa sér húsnæði næst þegar þeir skipta um húsnæði. Rúmlega þriðjungur telur alveg útilokað að þeir kaupi sér húsnæði við næstu flutninga og tæplega 40% til viðbótar telja það ólíklegt.

ÖBÍ hvetur stjórnvöld til að leita lausna svo að fleiri eigi kost á að sækja um fasteignalán, standast greiðslumat og eignast eigið húsnæði með tilheyrandi húsnæðisöryggi.

Áhrif áformanna á fatlað fólk

Aðildarfélög ÖBÍ eru 43 hagsmunasamtök ólíkra fötlunarhópa og telur félagafjöldi þeirra um 40.200 manns sem er á pari við Kópavogsbæ. Í þessum fjölmenna hópi eru einstaklingar í 100% starfshlutfalli á vinnumarkaði, fólk í hlutastörfum og einstaklingar sem reiða sig alfarið á örorkulífeyri almannatrygginga. Í þessu sambandi má benda á að atvinnuþátttaka fatlaðs fólks mun líklega aukast í ljósi gildistöku nýs almannatryggingakerfis. Þau sem fara á svokallaða hlutaörorku fá greiddan lífeyri sem nemur 82% af örorkulífeyri og geta haft tekjur upp að 350.000 án þess að greiðslurnar skerðist. Allar viðbótartekjur yfir því viðmiði skerðast um 45%.

Stytting lánstíma verðtryggðra húsnæðislána úr 40 árum í 25 ár hefur veruleg áhrif á greiðslubyrði lántaka. Við slíka styttingu hækkar mánaðarleg greiðslubyrði um 54 þúsund kr., eða um 650 þúsund kr. á ári. Slík hækkun getur leitt til þess að fólk með lágar og meðaltekjur standist ekki greiðslumat og eigi því ekki kost á að fjármagna íbúðarkaup með húsnæðisláni. Samkvæmt reglum Seðlabanka Íslands um hámark greiðslubyrðar fasteignalána má greiðslubyrði að hámarki nema 35% af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum lántaka. Við kaup á fyrstu fasteign er hámarkið 40%.

Meðallaun launafólks árið 2025 voru 913.000 kr. á mánuði, sem samsvarar um 642.000 kr. í útborguð laun. Miðað við 35% hámark greiðslubyrðar geta mánaðarlegar greiðslur af húsnæðisláni því að hámarki numið 224.700 kr. hjá einstaklingi með slíkar tekjur. Það nægir rétt til að standast greiðslumat vegna kaupa á 70 milljóna kr. fasteign ef lánstíminn er 40 ár. Sé lánstíminn hins vegar styttur í 25 ár hækkar mánaðarleg greiðslubyrði um 54 þúsund kr. og fer þar með yfir það hámark sem greiðslumatið heimilar. Afleiðingin getur því orðið sú að einstaklingur með meðaltekjur, sem hefði staðist greiðslumat miðað við 40 ára lán, standist það ekki þegar lánstíminn er 25 ár og eigi þar með ekki kost á að kaupa sömu fasteign. ÖBÍ hefur skilning á þeim efnahagslegu áskorunum sem eru tilgreindar í áformunum, en óttast að sú leið sem á að feta til að leysa vandann muni gera fötluðu fólki erfiðara fyrir að eignast eigið húsnæði.

ÖBÍ leggst gegn tillögum áformanna í núverandi mynd og hvetur stjórnvöld til að leita nýrra lausna sem stuðla að bættu aðgengi fatlaðs fólks að húsnæðismarkaðinum.

ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.

Ekkert um okkur án okkar!

Með vinsemd og virðingu,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ


Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda (hámarkslánstími verðtryggðra lána) |Samráðsgátt | Mál: S-199/2026
Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 23. október 2026