
„ÖBÍ hefur kallað eftir því að fatlað fólk fái notið verndar frá vistun í brottfararmiðstoð verði frumvarp um það efni að lögum og ítrekar þá afstöðu.“
ÖBÍ vill koma því á framfæri að alþjóðleg hagsmunasamtök fatlaðs fólks og flóttamanna hafa gagnrýnt verndar- og fólksflutningasamkomulag Evrópusambandsins harðlega. Út var að koma sameiginleg skýrsla EDF (European Disability Forum) og IRAP (International Refugee Assistance Project) með heitinu “A Pact that Excludes: Closing the Protection Gap for Migrants and Asylum Seekers with Disabilities in European Union”. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðas fólks virðist ekki lagður til grundvallar í samkomulaginu og samtökin óttast að réttindi fatlað fólks samkvæmt honum séu ekki tryggð.
Meðal þess sem er gagnrýnt er að fatlað fólk sé ósýnilegt innan kerfisins. Ekki sé skipulega safnað upplýsingum um stöðu fatlaðs fólks og aðkoma fatlaðs fólks og hagsmunasamtaka þeirra að ákvarðanatöku er ekki tryggð. Einnig er gagnrýnt að móttaka flóttafólks og skimunaraðferðir geta verið óaðgengilegar og mismunað fötluðu fólki.
Þá veldur áhersla á hraða afgreiðslu umsókna áhyggjum. Fatlað fólk þarf oft meiri tíma en aðrir, aðlögun á samskiptum og samskiptabúnaði, aðgengilegt húsnæði og heilbrigðisaðstoð. Samtökin telja samkomulagið ekki fela í sér tryggingar fyrir að slíkar þarfir fatlaðs fólks séu uppfylltar enda ekkert fjallað um það í samkomulaginu. Því er lýst áhyggjum af því að fatlað fólki standi frammi fyrir hindrunum að sanngjarnri málsmeðferð og vernd.
Í þeim drögum að frumvarpi sem hér eru til umsagnar er rík áhersla lögð á að auka hraða málsmeðferðar sem samkvæmt framangreindu getur falið í sér hindranir fyrir fatlað fólk. Í 5. gr. frumvarpsins er kveðið á um að það geti haft neikvæð áhrif á málsmeðferð ef umsækjendur um alþjóðlega vernd telst ekki hafa sýnt samvinnu. Fatlað fólk getur af ýmsum ástæðum átt erfiðara með að uppfylla kröfur um samvinnu og þeim því hættara við að verða fyrir hinum neikvæðu afleiðingum. Til að fyrirbyggja að brotið verði gegn mannréttindum fatlaðs fólks leggur ÖBÍ til að við frumvarpið verði bætt ákvæðum um að tryggja verði aðgengi fyrir fatlað fólk og viðeigandi aðlögun.
Í umsögn Félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd um þetta mál er bent á að samspil frumvarpsins við frumvarp til laga um brottfararmiðstöð leiði til þeirrar niðurstöðu að hægt verði að synja umsækjendum um alþjóðlega vernd um efnismeðferð, jafnvel verði hægt að vista viðkomandi í varðhaldsbúðum strax við komuna til landsins, viðkomandi fái ekki frestun réttaráhrifa, hraða málsmeðferð og mögulega brottvísun. Sé það rétt telur ÖBÍ að við slíkar aðstæður sé hætt við brotum á mannréttindum fatlaðs fólks.
Þá kalla samtökin eftir því að fatlað fólk verði undanþegið varðhaldsvistunum í verndarkerfinu. ÖBÍ hefur kallað eftir því að fatlað fólk fái notið verndar frá vistun í brottfararmiðstoð verði frumvarp um það efni að lögum og ítrekar þá afstöðu.
ÖBÍ gagnrýnir að aðeins hafi verið veittur viku umsagnarfrestur í Samráðsgátt um þetta mál. Ljóst er að um er að ræða umfangsmikið og tímafrekt mál sem varðar mannréttindi viðkvæmra hópa og rétt og eðlilegt að veittur væri umsagnarfrestur í samræmi við það.
Ekkert um okkur án okkar!
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögreglulögum (verndarsamkomulag ESB)
Mál nr. S-49/2026. Dómsmálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 27. febrúar 2026

