Í umsögn þessari kynna ÖBÍ réttindasamtök helstu áherslumál sín og tillögur í tengslum við frumvarp ríkisstjórnarinnar til fjárlaga 2027. ÖBÍ leggur áherslu á fimm atriði í umsögn sinni: kjaramál, heilbrigðismál og endurhæfingu, húsnæðis- og skipulagsmál, vinnumarkaðsmál og fjölskyldumál.

ÖBÍ fagnar tengingu örorkulífeyris við launavísitölu og að með því sé stigið skref í þá átt að brúa þá kjaragliðnun sem verið hefur á milli launa og lífeyris. Á móti telur ÖBÍ frumvarpið fela í sér kjaraskerðingar fyrir lágtekju- og millistéttarfólk. Barnabætur halda ekki verðgildi sínu, vaxtabætur eru afnumdar, persónuafsláttur lækkar, minna fjármagn er sett í endurhæfingarþjónustu og meiri álögur lagðar á notendur heilbrigðisþjónustu. Þá eru óuppfyllt loforð í húsnæðis- og aðgengismálum og gera þarf meira til að auka þjónustu við börn með skerðingar.

ÖBÍ gagnrýnir að framlög til málefna fatlaðs fólks samkvæmt lækki um krónutölu og enn meira að raunvirði. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var lögfestur árið 2025 og nauðsynlegt er að stórefla vitundarvakningu um samninginn og tryggja að honum sé fylgt í framkvæmd hjá öllum stofnunum ríkis og sveitarfélaga.

 

1. Kjaramál

Hækkun lífeyris í samræmi við launavísitölu

ÖBÍ fagnar því að lífeyrir almannatrygginga taki nú mið af hækkun verðlags eða launavísitölu. Gert er ráð fyrir að lífeyrir hækki um 7,3% um næstu áramót en ef stuðst hefði verið við eldri aðferðina (sem tók mið af ógegnsærri launaþróun) hefði lífeyrir almannatrygginga hækkað um 4%. Hækkunin á lið 27.10 á málefnasviði 27 er í samræmi við hækkun lífeyris. Í þessu sambandi er tvennt sem ÖBÍ vill koma að. Annars vegar er óskertur örorkulífeyrir 416.950 kr. og lægsti taxti hjá Eflingu er 481.921 kr. og er lífeyrir því um 86% af lágmarkslaunum. Með því að tengja lífeyri við launavísitölu (gangi hækkun launa eftir) verður lífeyrir um 89% af lágmarkslaunum. Hitt atriðið sem ÖBÍ vill taka fram er að lífeyrir hækkaði um 5,2% 1. janúar sl. en verðbólgan í ár hefur verið um 5,9%. Mismunurinn er 0,7% sem myndar hluta 7,3% hækkunarinnar

Hækkun kílómetragjalds

ÖBÍ mótmælir hækkun kílómetragjalds á lífeyrisþega sem er langt umfram hækkun verðlags og kemur þeim sem eru háðir ökutæki til að sækja þjónustu fyrir sig og börn sín mjög illa. ÖBÍ leggur til að lífeyristakar verði undanþegnir greiðslu kílómetragjalds eða þeir greiði mun lægra gjald. Að mati ÖBÍ hefur niðurfelling kílómetragjalds fyrir þá sem njóta niðurfellingar bifreiðagjalds óveruleg fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð.

ÖBÍ leggur til að bifreiðar sem keyptar eru á grundvelli reglugerðar nr. 905/2021 um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra vegna bifreiða séu undanþegnar greiðsluskyldu kílómetragjalds,

ÖBÍ leggur til að þau sem fá umönnunargreiðslur vegna fötlunar barns verði undanþegin kílómetragjaldi,

ÖBÍ leggur til að lífeyristakar greiði 50% lægra kílómetragjald.

Frysting barnabóta

ÖBÍ mótmælir því harðlega að barnabætur verði óbreyttar á milli ára, þ.e. 21 ma. en hækki ekki í samræmi við verðlagsforsendur. Barnabætur munu því standa í stað hvað krónutölu snertir tvö ár í röð án þess að hækka í samræmi við verðlag. Gangi þetta eftir munu barnabætur skerðast að raunvirði samtals um 1,9 ma. á þessum tveimur árum. Þessi skerðing hittir lægstu tekjuhópa (þ.m.t. örorkulífeyrisþega) hvað verst fyrir.

ÖBÍ leggur til að framlög til barnabóta hækki um 1,9 ma. svo þær haldi raungildi sínu.

Lækkun persónuafsláttar

Í frumvarpinu er persónuafsláttur lækkaður með breytingum á framleiðsluviðmiði. Með breytingunni lækkar framleiðsluviðmið í persónuafslætti úr 1% í 0,5%. Það er hins vegar sérákvörðun að í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027 verði framleiðsluviðmiðið 0%. Næstu fimm árin verði framleiðsluviðmiðið 0,5%. Að mati ÖBÍ er ákvörðunin um lækkun framleiðsluviðmiðs ekki nógu vel rökstudd. Breytingin eykur skattbyrði fólks mismikið en einna mest í lægstu tekjutíundunum sem margir lífeyrisþegar tilheyra og gerir þeim erfiðara að ná endum saman.

ÖBÍ leggur til að framleiðsluviðmið persónuafsláttar verði 0,5% árið 2027 og kostnaður við það verði 1,5 ma.

 

2. Heilbrigðismál

Sjúkrahúsþjónusta utan sjúkrahúsa – Málefnasvið 24

Á málefnasviðinu eru aukin framlög til rekstrar umfram verðlagsbreytingar um 5,5 ma. ÖBÍ gagnrýnir að ekki eigi að nota aukin framlög til málefnasviðsins til að draga úr greiðsluþátttöku sem var aukin töluvert árið 2026, m.a. með hækkun komugjalda til heilsugæslunnar og með sérstökum komugjöldum til sjúkraþjálfara. Þessar hækkanir hafa komið sér mjög illa fyrir lífeyrisþega sem nota þjónustu heilsugæslunnar og sjúkraþjálfara í meira mæli en aðrir. ÖBÍ hefur fengið fjölmargar ábendingar um að margir lífeyrisþegar hafi dregið úr komu til sjúkraþjálfara vegna komugjaldanna sem voru sett á í ágúst sl. Það er með öllu óviðunandi.

ÖBÍ leggur til að framlög verði aukin um 1 ma. til að draga úr greiðsluþátttöku í heilbrigðiskerfinu.

Hjúkrun og endurhæfing

Heildarframlög til málefnasviðsins eru aukin umfram verðlagsbreytingar um 2,5 ma. en skiptast misjafnt milli hjúkrunar og endurhæfingar. Framlög eru aukin til hjúkrunar en framlög til endurhæfingar eru í raun lækkuð að teknu tilliti til verðlagsbreytinga. Í raun hefðu framlög til endurhæfingar þurft að vera aukin um 150 millj. svo framlögin hefðu haldið verðgildi sínu. ÖBÍ gagnrýnir harðlega að framlög til endurhæfingar séu ekki aukin í ljósi mikilvægis hennar og þeirrar staðreyndar að fleira fólk sækir endurhæfingu en áður. Hér fer ekki saman hljóð og mynd. Endurhæfing er forsenda fyrir aukinni virkni, sjálfstæði, þátttöku og mögulegri endurkomu fólks á vinnumarkað. Áhersla á endurhæfingu jókst til muna með nýju almannatryggingakerfi sem tók gildi árið 2025. ÖBÍ telur farsælla að auka framlögin svo fjölga megi endurhæfingarúrræðum og gera fleirum kleift að stunda í endurhæfingu. Ályktun aðalfundar ÖBÍ fjallaði um áskoranir varðandi endurhæfingu, skort á úrræðum og fjármagni til málaflokksins.

ÖBÍ leggur til að framlög til endurhæfingar verði aukin um 300 millj. svo fjölga megi endurhæfingarúrræðum og mæta þörfum fyrir endurhæfingu.

Lyf og lækningavörur – Málefnasvið 26

Í hjálpartækjahluta málefnasviðsins hækka framlögin um 400 millj. en hefðu þurft að hækka um 460 millj. að raungildi. Því er um raunlækkun að ræða. Í því ljósi vekur það furðu að markmið málefnasviðsins sé að einfalda aðgang fólks að hjálpartækjum og tryggja jafnræði á meðal notenda. Í áherslum varðandi hjálpartæki á næsta ári á að endurskoða reglugerð um styrki vegna hjálpartækja sem og endurskoða þörf fyrir hjálpartæki.

Í lyfjahluta málefnasviðsins verða framlög til lyfja aukin um 761 millj. á milli ára umfram verðlagsbreytingar. ÖBÍ setur spurningarmerki við markmið málefnasviðsins sem felur í sér lækkun lyfjakostnaðar með endurskoðun á útgáfu lyfjaskírteina. Ef fækka á þeim lyfjum sem greiðsluþátttaka lyfjaskírteina nær yfir leggst ÖBÍ alfarið gegn slíkri framkvæmd.

ÖBÍ leggur til að framlög til hjálpartækja verði aukin um 200 millj. til að mæta kröfum um viðeigandi hjálpartæki.

 

3. Húsnæðismál- og skipulagsmál

Styrkur til að breyta húsnæði vegna fötlunar

ÖBÍ minnir stjórnvöld á stjórnarsáttmálann, þar sem kveðið er á um stofnun aðgengis- og aðlögunarsjóðs til að styrkja fatlað fólk til breytinga á húsnæði. ÖBÍ harmar að hvorki er ekki er gert ráð fyrir stofnun sjóðsins í fjárlagafrumvarpinu. Ísland er eina ríkið á Norðurlöndum sem býður ekki upp á neina styrki fyrir fólk sem þarf að framkvæma breytingar á húsnæði vegna fötlunar.

ÖBÍ heyrir reglulega af málum fatlaðs fólks og fatlaðra barna sem geta illa búið heima hjá sér sökum skorts á aðgengi. Þá eru dæmi um að Sjúkratryggingar Íslands hafni umsóknum um sætalyftu við stiga ef ekki er sýnt fram á að umsækjandi geti ekki skipt um húsnæði. Meirihluti íbúðarhúsnæðis á Íslandi er óaðgengilegur fötluðu fólki. Sú staða er ekki bundin við eldra húsnæði.

ÖBÍ skorar á ríkisstjórnina að upplýsa um hvort hún hyggist standa við gefin loforð um stofnun aðgengis- og aðlögunarsjóðs.

Félagslegt leiguhúsnæði sveitarfélaga og óhagnaðardrifin leigufélög

ÖBÍ lýsir yfir áhyggjum af snörpum lækkunum til stofnframlaga í fjárlögum um 3 ma. Samkvæmt fylgiriti fjárlaga er áætlað að framlögin lækki umtalsvert meira árið 2028 og verði 636 millj. sem er lækkun upp á 91,5% frá framlögunum 2026. ÖBÍ hefur skilning á að fyrirhuguð lækkun fyrir árið 2027 byggi á grunni ónýttra fjárheimilda. Þessi mikla lækkun er ekki nægilega rökstudd.

Óhagnaðardrifin leigufélög gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki við að tryggja fólki með lágar tekjur öruggt húsnæði og að húsnæðiskostnaður þess sé ekki umfram greiðslugetu. Samkvæmt samanburði á leiguverði 70 fermetra íbúðar í mars 2026 sem finna má í ársskýrslu Brynju leigufélags er leiguverð sveitarfélaga um 8% hærra en leiguverð Brynju og leiguverð hagnaðardrifinna leigufélaga um 51% hærra en leiguverð Brynju.

ÖBÍ leggur til að heildarframlög til stofnframlaga með yfirfærslu ónýttra fjárheimilda haldist í 7,5 ma. kr.

 

4. Vinnumarkaðsmál

ÖBÍ lýsir yfir áhyggjum af því að framlög til starfsendurhæfingar, fjárlagaliður 07-988, lækki í krónum talið á milli ára um fimm millj. en hefðu átt að hækka um 17 millj. í samræmi við verðlagsbreytingar. Undir starfsendurhæfingu heyrir m.a. Hringsjá sem veitir náms-, starfs- og heilbrigðistengda endurhæfingu fyrir einstaklinga 18 ára og eldri sem vegna sjúkdóma, slysa, fötlunar eða annarra áfalla þurfa á endurhæfingu að halda til að takast á við nám og/eða að stunda atvinnu á almennum vinnumarkaði.

ÖBÍ leggur til að Vinnumálastofnun fái aukalega 100 millj. til að fjölga atvinnutækifærum fyrir fatlað fólk.

ÖBÍ leggur til að fjárlagaliðurinn starfsendurhæfing fái aukalega 100 millj. til að auka endurhæfingu og virkni einstaklinga sem hafa einangrast vegna sjúkdóma, slysa, fötlunar eða annarra áfalla.

 

5. Fjölskyldumál

ÖBÍ fagnar því að framlög Barna- og fjölskyldustofu hækki um 46% á milli ára eða um 1 ma. til að auka þjónustu stofnunarinnar. Að auki eru framlög aukin í þjónustu og úrræði fyrir börn með fjölþættan vanda um 800 milljónir.

Framlög til Ráðgjafar- og greiningarstöðvar hækka um 12 millj. en hefðu þurft að hækka um 15 millj. vegna verðlagsbreytinga. Að mati ÖBÍ er hækkunin of lítil til þess að takast á við sívaxandi biðlista eftir þjónustu stofnunarinnar. Framlög til Sjónstöðvar hækka um 11 millj. en hefðu þurft að aukast um 16 millj. til samræmis við verðlagsbreytingar. Fyrrgreindar stofnanir þjóna mjög viðkvæmum hópum og er mikilvægt að þær nái að sinna hlutverki sínu.

ÖBÍ lýsir yfir áhyggjum af afleiðingum þess að í fjárlagafrumvarpinu eru tímabundin framlög upp á 1,1 ma. til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna innleiðingar á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna felld niður. Þrátt fyrir að tímabundnu innleiðingartímabili sé að ljúka standa lögbundnar skyldur sveitarfélaga óbreyttar og áfram er gerð krafa um að börn og fjölskyldur hafi aðgang að samþættri, snemmtækri og samfelldri þjónustu. Fulltrúar margra sveitarfélaga hafa sagt að þessi niðurfelling framlaga muni koma niður á þjónustu við börn, sem er óásættanlegt að mati ÖBÍ. Upplýsingar frá Umboðsmanni barna sýna að fjölmörg börn bíða lengur og lengur eftir greiningu, meðferð, sérfræðiþjónustu og öðrum stuðningsúrræðum innan heilbrigðis-, mennta- og félagsþjónustu. Langur biðtími getur haft víðtæk áhrif á þroska, menntun, félagslega þátttöku og lífsgæði barna og eykur líkur á að vandamál verði alvarlegri og kostnaðarsamara að leysa síðar.

ÖBÍ leggur til að framlög til Ráðgjafar- og greiningarstöðvar hækki um 100 millj. og framlög til Sjónstöðvar verði hækkuð um 50 millj. eða samtals 150 millj. til þessara tveggja stofnana til að gera þeim kleift að stytta biðlista eftir þjónustu og bæta hana,

ÖBÍ leggur til að framlögum vegna innleiðingar á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna upp á 1,1 ma. til Jöfnunarsjóðs verði haldi áfram.

 

Lokaorð

ÖBÍ réttindasamtök eru sem endranær reiðubúin að fylgja eftir umsögn sinni og óska eftir að eiga samtal og samvinnu við Alþingi og stjórnvöld um frekari úrvinnslu frumvarpsins. Þá áskilja samtökin sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.

Virðingarfyllst,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ

Sunna Elvira Þorkelsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ

Sigríður Hanna Ingólfsdóttir
félagsráðgjafi ÖBÍ

Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ

Rósa María Hjörvar
verkefnastjóri ÖBÍ

Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ

Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ

Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ


Fjárlög 2027
1. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 7. október 2026