Verðlaunahafi 2021
-
Haraldur Þorleifsson fyrir verkefnið Römpum um Reykjavík
Verðlaunahafar 2020
-
Sunna Dögg Ágústdóttir, fyrir að vera ötull talsmaður ungs fólks með þroskahömlun.
-
Íþróttafélagið Ösp, fyrir að standa að íþróttaæfingum og mótum fyrir börn með fötlun síðan 1980.
-
Pepp Ísland, fyrir þrotlausa baráttu gegn fátækt og félagslegri einangrun öryrkja og fleiri minnihlutahópa.
-
SÍBS, fyrir að vera leiðandi í atvinnumálum öryrkja og fólks með skerta starfsgetu og að hafa leitast við að draga fram jákvæð samfélagslegáhrif með atvinnu fyrir alla.
Verðlaunahafar 2019
-
Sólveig Ásgrímsdóttir; fyrir að skrifa bókina Ferðalag í flughálku, sem er fyrsta bókin á íslensku sem fjallar um ADHD og unglinga og hvað þeir eru að takast á við.
-
Réttinda Ronja – landssamtök íslenskra stúdenta; fyrir að setja upp heimasíðu og gagnabanka þar sem hægt er að nálgast nákvæmar og réttar upplýsingar um réttindi fatlaðra nemenda á einstaklingsmiðaðan hátt.
-
Stundin – fréttamiðill; fyrir vandaða umfjöllun um málefni öryrkja, sjúklinga og eillilífeyrisþega.
- Einhverfusamtökin; fyrir heimildamyndina „Að sjá hið ósýnilega“
Verðlaunahafar 2018
Í flokki einstaklinga:
-
Rúnar Björn Herrera Þorkelsson ; fyrir baráttu sína fyrir málstað fatlaðs fólks og sér í lagi innleiðingu á notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA)
- Bataskóli Íslands; fyrir þátttöku í því að skapa úrræði fyrir þá sem þurfa stuðning við að koma lífi sínu í réttan farveg.
- Knattspyrnusamband Íslands; fyrir ómetanlegan stuðning við kynningarátak Parkinsonsamtakanna Sigrum Parkinson.
- MS – félag Íslands; fyrir útgáfu sex fræðslubæklinga , MS sjúkdómurinn er áskorun.
Verðlaunahafar 2017

- Hlín Magnúsdóttir, fyrir brennandi áhuga og frumkvæði að fjölbreyttum kennsluaðferðum.
- TravAble, fyrir hönnun og þróun á smáforriti sem gefur upplýsingar um aðgengi fyrir hreyfihamlað fólk og fólk með sérþarfir.
-
RÚV, fyrir að kynna og sýna þættina „Með okkar augum“ á besta áhorfstíma.
Verðlaunahafar 2016

- Friðrik Sigurðsson, fyrir störf sín í þágu fólks með þroskahömlun og aðstandenda þeirra.
- Dagsól ehf.-verslunin Next, fyrir metnaðarfulla starfsmannastefnu sem meðal annars felur í sér að ráða fólk með skerta starfsgetu.
-
Tabú, fyrir fræðslu go markvissa umfjöllun um stöðu fatlaðs fólks í samfélaginu.
Verðlaunahafar 2015
- Brynjar Karl Birgisson, fyrir Lego-verkefnið „Titanic“ og söguna „Minn einhverfi stórhugur“.
- Sjónarhóll, fyrir ráðgjöf og dyggan stuðning við réttindabaráttu foreldra barna með sérþarfir.
-
Snædís Rán Hjartardóttir, fyrir baráttu sína við stjórnvöld vegna synjunar á túlkaþjónustu.
Verðlaunahafar 2014
- Ólafur Ólafsson, fyrir að helga líf sitt íþróttum fatlaðs fólks.
- Háskóli Íslands, fyrir starfstengt diplómanám fyrir fólk með þroskahömlun.
-
Arnar Helgi Lárusson, fyrir frumkvæði að átakinu „Aðgengi skiptir máli“.
Verðlaunahafar 2013
- Margrét M. Norðdahl, fyrir að tengja saman listsköpun fatlaðra og ófatlaðra með listahátíðinni List án landamæra.
- GÆS kaffihús, fyrir að koma á fót og standa fyrir rekstri eigin kaffihúss og brjóta múra í vinnumálum þroskahamlaðra.
-
Sendiherraverkefni, fyrir markvissa kynningu á sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks á vernduðum vinnustöðum, í framhaldsskólum og í félagsþjónustu um allt land.
Verðlaunahafar 2012
- Inga Björk Bjarnadóttir, fyrir að vera öðrum fyrirmynd og berjast fyrir bættu aðgengi og þjónustu fyrir fatlað fólk í Borgarbyggð.
- Gerpla fimleikafélag, fyrir að hafa, eitt íþróttafélaga, boðið upp á fimleikaþjálfun fyrir fólk með þroskahamlanir allt frá árinu 1997.
-
Lára Kristín Brynjólfsdóttir, fyrir baráttu og hugrekki við að vekja umræðu um einhverfu og auka skilning almennings og heilbrigðisyfirvalda á stöðu fullorðinna á einhverfurófi.
Verðlaunahafar 2011
- Bergþór Grétar Böðvarsson, fyrir að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri umræðu um geðsjúkdóma á Íslandi.
Í flokki fyrirtækja/stofnana:
- Hestamannafélagið Hörður, fyrir frumkvöðlastarf í hestaíþróttum fatlaðra barna og unglinga.
Í flokki umfjöllunar/kynningar:
- Umsjónarfólk sjónvarpsáttarins „Með okkar augum“, fyrir frumkvöðlastarf í íslenskri dagskrárgerð.
Verðlaunahafar 2010
- Harpa Dísa Harðardóttir, fyrir metnaðarfullt starf við gerð orlofshúss með góðu aðgengi fyrir fatlað fólk og áralanga baráttu fyrir réttindum þess.
- Reykjadalur, fyrir ötult starf í þágu fatlaðra barna og ungmenna með rekstri sumarbúða og helgardvalar að vetri.
- Margrét Dagmar Ericsdóttir, fyrir myndina Sólskinsdrengurinn, sem aukið hefur skilning almennings á margbreytileika einhverfu.
* ATH. Sú breyting var gerð árið 2010 að tveir flokkar, fyrirtæki og stofnanir, voru sameinaðir í einn flokk og nýr flokkur, umfjöllun/kynning kom inn sem þriðji flokkurinn.
Verðlaunahafar 2009
- Edda Heiðrún Backman, fyrir mikinn styrk, kjark og áræðni í að bæta aðstöðu sjúkra og fatlaðra, m.a. með söfnunarátakinu „Á rás fyrir Grensás“.
- SÍBS, fyrir fyrirmyndaraðgengi við SÍBS-húsið, Síðumúla 6.
-
Öskjuhlíðarskóli, fyrir að gera nemendur hæfa til þátttöku í samfélaginu á sem flestum sviðum eftir því sem geta þeirra leyfir.
Verðlaunahafar 2008
- Guðjón Sigurðsson, fyrir sýnileika, dugnað og árangur í málefnum fatlaðra.
Í flokki fyrirtækja:
- Tónstofa Valgerðar, fyrir frumkvöðlastarf í þá veru að nemendur með sérþarfir njóti forgangs til tónlistarnáms.
Í flokki stofnana:
- Akureyrarbær – búsetudeild, fyrir frumkvöðlastarf í útfærslu á “Independent living”, notendastýrðri þjónustu fyrir fatlaða.
Verðlaunahafar 2007
- Freyja Haraldsdóttir, fyrir áhrif sín til að breyta viðhorfum fólks til fatlaðra og fyrir að vera frumkvöðull í að koma á fót notendastýrðri þjónustu fyrir fatlað fólk.
Í flokki fyrirtækja:
- Móðir náttúra, fyrir mikilvægt frumkvöðlastarf til aukinnar atvinnuþátttöku fatlaðra.
Í flokki stofnana:
- Starfsendurhæfing Norðurlands, fyrir uppbyggingu starfsendurhæfingar sem byggir á samstarfi ólíkra starfsstétta og öflugu samfélagslegu tengslaneti.