Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Ertu ekki farin að vinna?! Málþing ÖBÍ um verðleikasamfélag

30. janúar @ 13:00 - 16:00

Kjarahópur og atvinnu- og menntahópur ÖBÍ réttindasamtaka standa fyrir málþingi þriðjudaginn 30. janúar 2024 frá kl. 13:00 til 16:00 á Nauthól. 

Dagskrá

  • Ávarp: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra
  • Sjónarmið ÖBÍ réttindasamtaka: Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka
  • Virði manneskjunnar handan vinnu: Nanna Hlín Halldórsdóttir, sérfræðingur við Heimspekistofnun HÍ
  • Er vinnan mikilvægari en lífið? – Reynslusaga: Hrönn Stefánsdóttir, formaður atvinnu- og menntahóps ÖBÍ
  • Hindranir fyrir atvinnuþátttöku: Anna Margrét Bjarnadóttir, kjarahópi ÖBÍ réttindasamtaka
  • Vitundarvakning okkar allra – Reynslusaga: Kristín Auðbjörnsdóttir, móðir í endurhæfingu
  • Spurt og svarað
  • Kaffihlé
  • Hvað er inngilding í vinnu innan og utan vinnumarkaðar? Stefan C. Hardonk, dósent við HÍ
  • Ég get unnið með skerta starfsgetu – Reynslusaga: Atli Þór Þorvaldsson, viðskiptafræðingur með ósýnilega fötlun
  • Handverkskonur með örorkulífeyri – Reynslusaga: Guðbjörg Kristín og Þóra Eiríksdætur.
  • Er ég bara geðraskanirnar mínar? – Reynslusaga: Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, varaformaður kjarahóps ÖBÍ og valkyrja.
  • Spurt og svarað
  • Lokaorð: Þuríður Harpa Sigurðardóttir, fundarstjóri.

Málþingið tekur fyrir virði manneskjunnar óháð þátttöku á vinnumarkaði og (van)mat á framlagi fatlaðs fólks sem ekki getur tekið þátt á vinnumarkaði.  Þá verður fjallað um inngildingu í atvinnu og hvernig hún birtist innan og utan vinnumarkaðar og áhrif kerfislægra hindrana fyrir atvinnuþátttöku fatlaðs fólks (s.s. tekjuskerðingar). Áhersla verður á fólk með ósýnilegar fatlanir.

Fundarstjóri: Þuríður Harpa Sigurðardóttir, fyrrverandi formaður ÖBÍ réttindasamtaka.

Málþinginu verður rit- og táknmálstúlkað og því verður einnig streymt.

Upplýsingar

Dagsetning:
30. janúar
Tími:
13:00 - 16:00
Viðburðir Flokkur:

Skipuleggjandi

ÖBÍ réttindasamtök
Phone:
530 6700
Email:
obi@obi.is
Skoða Skipuleggjandi Vefsíðu

Vettvangur

Nauthóll
Nauthólsvegur 106
Reykjavík, 102 Iceland
+ Google Map