Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Aðstandendanámskeið 6-12 barna með ADHD Vor 2024

3. febrúar @ 09:00 - 16:00

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD frá 6-12 ára aldri verður haldið 3. febrúar 2024 í húsakynnum ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð og í gegnum fjarfundarbúnað.

Námskeið er haldið einn laugardag i senn frá kl. 09:00-16:00. Ath! Boðið er uppá veitingar í hádeginu, ásamt kaffi og með því.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á ADHD röskunni og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nákomna. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Boðið verður upp á fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn.

Skipulag og dagskrá 3. febrúar 2024

Kl. 09:00 – 10:00         Hvað er ADHD?             Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur

Kl. 10:00 – 11:00          ADHD og lyfjamál         Tilkynnt síðar

Kl. 11:00 – 11:15            Hlé

Kl. 11:15 – 12:15            ADHD og nám               Haukur Örvar Pálmason sálfræðingur

Kl. 12:15 – 13:00           Hádegishlé

Kl. 13.00 – 14.00          ADHD og kvíði              Kristín R. Sigurðardóttir sálfræðingur

Kl. 14:00 – 15:00         ADHD og fjölskyldan    Dr. Drífa B. Guðmundsdóttir sálfræðingur

Kl. 15:00 – 15:15 Hlé

KL. 15:15 – 16:00         Kynning á Sjónarhól     Lára G. Magnúsdóttir þroskaþjálfi

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

Upplýsingar

Dagsetning:
3. febrúar
Tími:
09:00 - 16:00
Viðburðir Flokkur:

Vettvangur

Háaleitisbraut 13
Háaleitisbraut 13
Reykjavík, Iceland
+ Google Map