Viðburðir

Morgunbollinn – Kynnumst Átaki

Mannréttindahúsið Sigtún 42, Reykjavík

Komdu og kynnstu Átaki, öflugu hagsmunafélagi fólks með þroskahömlun sem gekk nýverið í hóp aðildafélaga ÖBÍ á aðalfundi 2025.

Morgunbollinn – Get ég notað gervigreind í hvað sem er?

Nú þegar sífellt fleiri eru að prófa sig áfram með að nota gervigreind í námi, starfi og einkalífi er afar gagnlegt að skilja aðeins betur hvernig hún virkar á bak við tjöldin. Á viðburðinum verður farið yfir hvernig gervigreindinni tekst að svara nánast hvaða spurningu sem er, og af hverju hún svarar stundum með algjöru bulli.

Stjórnarfundur

Mannréttindahúsið Sigtún 42, Reykjavík

Fundur stjórnar ÖBÍ réttindasamtaka.

Pöbbkviss UngÖBÍ

UngÖBÍ stefnir á að vera með pöbbkviss laugardagskvöldið 28. mars klukkan 20:00 ♥ Upplýsingar um hvar pöbbkvissið verður haldið munu birtast hér í febrúar.

Stefnuþing ÖBÍ

Stefnuþing ÖBÍ réttindasamtaka með fulltrúum aðildarfélaga verður haldið föstudaginn 17. apríl næstkomandi. Tölvupóstur með nánari upplýsingum hefur verið sendur aðildarfélögum.  

EDF aðalfundur

EDF (European Disability Forum) er samstarfsvettvangur heildarsamtaka fatlaðs fólks í Evrópusambandslöndunum. Aðalfundur EDF 2026 verður haldinn 9. til 10. maí næstkomandi.