Viðburðir

Jafningjahittingur Tabú

Mannréttindahúsið Sigtún 42, Reykjavík

Tabú, feminísk fötlunarhreyfing, hefur haldið úti jafningjastuðningi og jafningjanámskeiðum fyrir fatlaðar konur og kvár í rúman áratug. Tabú býður upp á opna jafningjahópa að jafnaði einu sinni í mánuði. Næsti...

Morgunbollinn – Kynnumst Átaki

Mannréttindahúsið Sigtún 42, Reykjavík

Komdu og kynnstu Átaki, öflugu hagsmunafélagi fólks með þroskahömlun sem gekk nýverið í hóp aðildafélaga ÖBÍ á aðalfundi 2025.

Hugvísindaþing

Háskóli Íslands

Hugvísindaþing 2026 verður haldið í Háskóla Íslands dagana 13. og 14. mars. Á Hugvísindaþingi er borið fram það helsta í fræðunum í stuttum fyrirlestrum og málstofum. Aðgangur er ókeypis og...

Alþjóðadagur Downs heilkennis

Með okkur ekki fyrir okkur Á þessum degi klæðumst við mislitum sokkum til að fagna fjölbreytileikanum. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti árið 2011 að 21. mars skyldi vera alþjóðlegur dagur Downs-heilkennis.

Málþing – Veik og þreytt dag eftir dag

Grand Hótel Reykjavík Sigtún 38, Reykjavík

Á dagskrá eru stutt erindi frá ólíkum samtökum og að þeim loknum pallborðsumræður með spurningum úr sal, þar sem fjallað verður um reynslu, áskoranir og stöðu kvenna sem lifa með langvinn veikindi.

Stjórnarfundur

Mannréttindahúsið Sigtún 42, Reykjavík

Fundur stjórnar ÖBÍ réttindasamtaka.

Kynningarkvöld fyrir hinsegin fatlað fólk

Regnbogasalur -Samtökin 78 Suðurgata 3, Reykjavík

ÖBÍ réttindasamtök og Samtökin 78 standa fyrir opnu kynningarkvöldi fyrir hinsegin fatlað fólk föstudaginn 27. mars milli kl. 17-19 í regnbogasalnum að Suðurgötu 3. Markmið kvöldsins er að bjóða hinsegin...

Pöbbkviss UngÖBÍ

UngÖBÍ stefnir á að vera með pöbbkviss laugardagskvöldið 28. mars klukkan 20:00 ♥ Upplýsingar um hvar pöbbkvissið verður haldið munu birtast hér í febrúar.

Stefnuþing ÖBÍ

Stefnuþing ÖBÍ réttindasamtaka með fulltrúum aðildarfélaga verður haldið föstudaginn 17. apríl næstkomandi. Tölvupóstur með nánari upplýsingum hefur verið sendur aðildarfélögum.