Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Málþing um foreldra sem glíma við geðræn veikindi

18.09.2025 @ 09:00 - 12:00
Auglýsingaplakat, texti: viðo erum ennþá foreldrar. Málþing 18. september um foreldra sem glíma við andleg veikindi.

Í tilefni af fjögurra ára afmæli Okkar heims og opnun nýrrar fræðslusíðu blásum við til málþings þar sem við lyftum röddum foreldra sem glíma við geðræn veikindi.

Málþingið fer fram í Grósku fimmtudaginn 18. september kl. 9:00–12:00. Málþingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og er opið öllum. Takmarkaður fjöldi sæta er í boði á staðnum og hvetjum við öll sem vilja mæta til að skrá sig sem fyrst. Táknmálstúlkur verður á staðnum.

Skráningarsíða: malthing.okkarheimur.is  Einnig verður boðið upp á að fylgjast með í streymi og ekki er þá þörf á að skrá þátttöku.

Við fáum innsýn inn í líf foreldra sem glíma við geðræn veikindi og skoðum hvaða áhrif veikindin geta haft á fjölskyldulífið.

–  Hvernig er að vera foreldri og glíma við geðræn veikindi?
– Hvernig getum við sem samfélag stutt betur við fjölskyldur?
– Hvað þurfa börn þegar foreldrar glíma við veikindi?

Við hvetjum öll sem láta sig málið varða – fagfólk, foreldra, aðstandendur og áhugafólk – til að mæta og taka þátt. Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.

» Viðburðurinn á Facebook 

Upplýsingar

  • Dagsetning: 18.09.2025
  • Tími:
    09:00 - 12:00
  • Viðburðir Flokkur:

Vettvangur