- This event has passed.
Opið stuðningskvöld Tilveru
11. maí @ 20:00 - 21:30

Mánaðarlegt stuðningskvöld Tilveru – mánudaginn 11. maí
Að þessu sinni verður spjallið opið fyrir alla sem eiga eða hafa átt við frjósemisvanda að stríða. Við vitum að slíkar áskoranir geta verið bæði krefjandi og einangrandi, og því skiptir miklu máli að hitta fólk sem skilur og getur hlustað af skilningi.
Stuðningsspjöll Tilveru eru vettvangur þar sem hægt er að deila reynslu, fá ráð og finna samstöðu. Ef þú hefur velt fyrir þér hvernig slíkar samverur geta stutt þig á þinni vegferð, þá er þetta kvöld kjörið tækifæri til að kynnast því í öruggu og hlýju umhverfi.
Við hittumst kl. 20:00 í húsakynnum ÖBÍ, Sigtúni 42, og eigum saman notalega kvöldstund.
Trúnaður ríkir á öllum viðburðum félagsins.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Hlökkum til að sjá sem flesta.



