Fréttir

Fyrirsagnalisti

14.12.2005 : Tillögur Tryggva Þórs Herbertssonar um aðgerðir til að draga úr fjölgun öryrkja

Í samandregnum niðurstöðum skýrslunnar segir í byrjun að ástæður fjölgunar öryrkja sem vart hafi orðið í OECD-ríkjunum á undanförnum áratugum séu lítt kunnar, en helst sé horft til “hvernig fólk sé metið inn á örorku og hve ríflegar bæturnar eru.” (bls. 3). Í skýrslunni er beitt því sjónarhorni sem kallað er “hagfræði örorku”, en af umfjöllun í henni og heimildum er ljóst að einkum er gengið út frá sjónarhorni bandarískrar velferðarstefnu. Lesa meira

9.12.2005 : Meðmælaganga og útifundur

Það gustaði um göngumenn þegar haldið var af stað með Skólahljómsveit Kópavogs í broddi fylkingar.
Föstudaginn 9. desember efndu Öryrkjabandalag Íslands og Landssamband eldri borgara til meðmælagöngu frá Hallgrímskirkju að Austurvelli þar sem haldinn var útifundur. Allt að 1000 manns tóku þátt í aðgerðinni. Krafa dagsins var "Ekkert um okkur án okkar" og "Eitt samfélag fyrir alla". Lesa meira

8.12.2005 : Svör við athugasemdum Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og Fjármálaráðuneytis

Svör Stefáns Ólafssonar við athugasemdum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis
og fjármálaráðuneytis við skýrslu hans „Örorka og velferð á Íslandi og í öðrum vestrænum löndum“.

6.12.2005 : Nýr vefur Tryggingamiðstöðvarinnar hlýtur vottun um aðgengi fyrir fatlaða

Talið frá vinstri Anna Ingibergsdóttir vefstjóri TM, Arnþór Helgason framkvæmdastjóri ÖBÍ, Pétur Pétursson framkvæmdastjóri vátrygginga- og fjármálaþjónustu hjá TM og Alda Sigurðardóttir hjá Sjá ehf
Tryggingamiðstöðin hlaut í dag vottun frá fyrirtækinu Sjá ehf. og Öryrkjabandalagi Íslands um að nýr og gjörbreyttur vefur fyrirtækisins www.tryggingamidstodin.is sem tilnefndur var til Íslensku vefverðlaunanna, standist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða. Lesa meira

1.12.2005 : Örorka og velferð á Íslandi

Skýrsla Stefáns Ólafssonar, prófessors hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, Örorka og velferð á Íslandi og í öðrum vestrænum löndum er komin út.

Í inngangi segir að markmið rannsóknarinnar sé að gera grein fyrir umfangi, einkennum og þróun örorku á Íslandi, með samanburði við örorkumál grannríkjanna á Vesturlöndum. Einnig er fjallað um kjör íslenskra öryrkja, þjónustu velferðarkerfisins, þjóðfélagsaðstæður og stefnu og aðgerðir stjórnvalda í málum fatlaðra og öryrkja. Tilgangur verksins er sá að skýra stöðu þessara mála og framvindu á síðustu árum, draga lærdóm af reynslu grannríkjanna og búa í haginn fyrir framtíðarstarf á þessu sviði velferðarmála.

Rannsóknin er unnin við Rannsóknarstöð þjóðmála, sem er hluti af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Öryrkjabandalag Íslands er styrktaraðili að rannsókninni.

 

Tengill á skýrslu Stefáns - Örorka og velferð á Íslandi.

16.11.2005 : Yfirlýsing frá Öryrkjabandalagi Íslands


Öryrkjabandalag Íslands óskar aðilum vinnumarkaðarins til hamingju með samkomulag við ríkisstjórn Íslands sem staðfest var 15. þessa mánaðar og bæta mun kjör launþega og atvinnulausra. Lesa meira

19.10.2005 : Nýr formaður Öryrkjabandalags Íslands

Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalags Íslands, kjörinn á aðalfundi ÖBÍ, 19. október 2005
Á aðalfundi Öryrkjabandalags Íslands var Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar, kjörinn formaður Öryrkjabandalags Íslands.

19.10.2005 : Ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands 19. október 2005

Um sameiningu Sjónstöðvar Íslands og Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands Lesa meira

14.10.2005 : Nýtt logo ÖBÍ

Kennimerki Öryrkjabandalags Íslands

Um miðjan októbermánuð var kynnt nýtt logo Öryrkjabandalags Íslands. Höfundur þess er Bjarki Lúðvíksson hjá auglýsingastofunni Hvíta húsinu.

Merkið er tákn fjölbreytileika og innra styrks Öryrkjabandalagsins.

16.6.2005 : Fyrirmynd annarra heimasíðna

ÖBÍ gerir samning við Hugsmiðjuna, frá vinstri Arnþór Helgason, Áslaug Friðriksdóttir og Stefán Baxter
Í dag var undirritaður samningur milli Öryrkjabandalag Íslands og Hugsmiðjunnar ehf um nýja heimasíðu fyrir ÖBÍ, sem verður aðgengileg öllum notendum. Hugsmiðjan ehf hefur sérhæft sig í að hafa heimasíður aðgengilegar og lagt sérstaka áherslu á fatlaða notendur. Lesa meira

1.5.2005 : Breyttur opnunartími ÖBÍ

Frá og með 1. mars verður skrifstofa Öryrkjabandalags Íslands og Hússjóðs Öryrkjabandalagsins opin sem hér segir: Lesa meira

3.2.2005 : Vefur Strætó fær vottun um aðgengi fyrir fatlaða

Mynd: Arnþór prófar vef Strætó. Sirrý og Ásgeir fylgjast með.
Öryrkjabandalag Íslands og ráðgjafafyrirtækið Sjá ehf. hafa vottað að vefur Strætó, bus.is, standist alþjóðlegar kröfur um aðgengi fyrir fatlaða. Vottunin felur í sér að allir hafi aðgang að efni vefjarins og geti hagnýtt sér það, óháð fötlun eða getu. Aðeins einn íslenskur vefur hefur áður fengið vottun Öryrkjabandalagsins og Sjár. Lesa meira

20.1.2005 : Formannsskipti hjá Öryrkjabandalagi Íslands

Formaður ÖBÍ Emil Thóroddsen
Emil Thóroddsen, varaformaður Öryrkjabandalags Íslands hefur tekið við formennsku af Garðari Sverrissyni sem lætur af störfum af heilsufarsástæðum. Frá þessu var gengið á fundi framkvæmdastjórnar bandalagsins í dag. Lesa meira


Flýtival