Lífeyrissjóðir sem aðild eiga að Greiðslustofu lífeyrissjóða hafa sent út fréttatilkynningu þess efnis að ákveðið hafi verið að fresta framkvæmd breytinga vegna tekjuathugunar örorkulífeyrisþega til ársloka 2006.
Lesa meira
Þann 22. febrúar 2006 voru fjörutíu ár liðin frá því að forseti Íslands staðfesti skipulagsskrá Hússjóðs Öryrkjabandalags Íslands. ÖBÍ óskar íbúum, stjórn og starfsmönnum Hússjóðs til hamingju og farsældar á komandi árum.
Á fundi framkvæmdastjórnar bandalagsins þann 6. janúar var samþykkt samhljóða að segja ráðningarsamningi Arnþórs upp. Uppsögnin er liður í skipulagsbreytingum sem eru í undirbúningi. Arnþór hafði starfað sem framkvæmdastjóri ÖBÍ í 5 ár og eru honum af heilum hug þökkuð óeigingjörn störf í þágu fatlaðra. Honum er sömuleiðis óskað velfarnaðar í framtíðinni.
Lesa meira