
Dans og drifkraftur. Öskursöngur og ógleymanleg augnablik. Allur tilfinningaskalinn í kvöldsólinni. Nú er kominn tími til að vakna. Nú er kominn tími til að vaka.
Kvennaár býður konum og kvárum til Kvennavöku í Hljómskálagarði að kvöldi kvenréttindadagsins 19. júní 2025. Kvennavaka er í senn stórtónleikar, samkomustaður og frí frá amstri dagsins. Búbblur með vinkonunum og kröftugur dans með vinkvárunum. Fram koma Bríet, Reykjavíkurdætur, Heimilistónar, Countess Malaise og Mammaðín.
» Aðgengi á Kvennavökunni – kvennaar.is » Nánari upplýsingar: Kvennavaka // Stórtónleikar Kvennaárs – kvennaar.is