Þegar ADHD fylgir þér“ – Málþing ADHD samtakanna
30. október

„Þegar ADHD fylgir þér“ – Málþing ADHD samtakanna föstudaginn 30. október 2026 í Veislusmáranum, Sporhamrar 3 Grafarvogi og í streymi.
Þegar ADHD fylgir þér geta samskipti orðið flóknari, tilfinningar sterkari og kröfur daglegs lífs tekið meiri orku.
Að auki getur nám, atvinnuþátttaka, fjármál, sambönd og foreldrahlutverkið orðið meira krefjandi.
Á málþingi ADHD samtakanna beinum við sjónum að lífi fullorðinna með ADHD, áskorunum, úrræðum og leiðum sem geta skipt máli.
Málþingið er ætlað einstaklingum með ADHD, aðstandendum og öllum sem starfa með, styðja eða þjónusta fólk með ADHD.



