Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

EAPN á Íslandi: Fátækt á Fróni [morgunverðarfundur]

13. mars @ 09:00 - 10:30

EAPN á Íslandi, samtök gegn fátækt, standa fyrir morgunverðarfundi miðvikudaginn 13. mars kl. 9 – 10:30 í Grófinni, Borgarbókasafninu, Tryggvagötu 15.

Dagskrá

» Þorbera Fjölnisdóttir, formaður EAPN á Íslandi, býður fólk velkomið.

» Halldór Sigurður Guðmundsson dósent í félagsráðgjöf við HÍ og Kolbeinn Stefánsson dósent í félagsfræði við HÍ kynna niðurstöður rannsóknar sem þeir unnu fyrir forsætisráðuneytið um fátækt og áætlaðan samfélagslegan kostnað. Auk þess segja þeir frá þeirri vinnu sem framundan er í ráðuneytinu í kjölfar niðurstaðna rannsóknarinnar.

» Hildur Oddsdóttir, stofnandi Hjálparkokka, segir frá hvaða áhrif það hefur á líf fólks og barna þeirra að búa við langvarandi fátækt og kynnir starf Hjálparkokka, samtaka sem m.a. aðstoða foreldra í fátækt við að gefa börnum sínum jólagjafir.

» Pallborð og umræður.

Boðið verður upp á veitingar.


ÖBÍ er eitt aðildarfélaga EAPN á Íslandi.

Upplýsingar

Dagsetning:
13. mars
Tími:
09:00 - 10:30
Viðburðir Flokkur:
Vefsíður:
https://www.facebook.com/events/1882922978825885?ref=newsfeed

Vettvangur

Borgarbókasafnið – Grófinni
Tryggvagata15
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map