Ár hvert er 17. október helgaður baráttunni gegn fátækt um allan heim. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna viðurkenndi daginn árið 1992 til að vekja athygli á fátækt og hvetja stjórnvöld til raunverulegra aðgerða gegn henni.
Í tilefni dagsins vekja kjarahópur ÖBÍ réttindasamtaka og EAPN á Íslandi athygli á lífskjörum fólks sem býr við fátækt hér á landi. Markmiðið er að varpa ljósi á stöðu þess, afleiðingar fátæktar og nauðsyn þess að grípa til aðgerða.
Um 35 þúsund einstaklingar á Íslandi búa við fátækt, þar af rúmlega 10 þúsund börn. Fátækt snýst ekki eingöngu um skort á peningum heldur hefur hún áhrif á lífsgæði, öryggi og möguleika fólks til að taka fullan þátt í samfélaginu.
Rannsóknir sýna að einstæðir foreldrar, innflytjendur og örorkulífeyristakar eru í sérstakri hættu á að búa við fátækt. Fólk í láglaunastörfum getur átt erfitt með að ná endum saman þrátt fyrir að vera í fullri vinnu.
Íþyngjandi húsnæðiskostnaður er eitt helsta sameiginlega einkenni fjárhagsstöðu fólks sem býr við fátækt á Íslandi.
ÖBÍ réttindasamtök og EAPN á Íslandi vinna að því að bæta lífskjör fólks og berjast gegn fátækt, félagslegri einangrun og jaðarsetningu. Áhersla er á að allir geti lifað mannsæmandi lífi, búið við fjárhagslegt öryggi og tekið fullan þátt í samfélaginu.
ÖBÍ réttindasamtök eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Innan samtakanna starfa 43 aðildarfélög og sex málefnahópar þar sem reynsla og þekking mótar áherslur og stefnu samtakanna.
Kjarahópurinn er einn þessara málefnahópa og vinnur að bættum kjörum og lífsskilyrðum fatlaðs fólks. Hópurinn fjallar meðal annars um almannatryggingar, framfærslu, skerðingar og fjárhagslegt öryggi.
Markmiðið er að vinna gegn fátækt og félagslegri einangrun og stuðla að því að fatlað fólk geti lifað sjálfstæðu og mannsæmandi lífi af eigin tekjum.
EAPN á Íslandi eru hluti af European Anti-Poverty Network, evrópskum samtökum sem stofnuð voru árið 1990 og berjast gegn fátækt og félagslegri einangrun.
Samtökin líta á fátækt sem mannréttindamál og leggja áherslu á að allir eigi rétt á að lifa með reisn. Starfið felst meðal annars í að vekja athygli á fátækt, hafa áhrif á stefnu stjórnvalda og efla rödd og þátttöku fólks sem býr við fátækt.
EAPN leggur áherslu á að orsakir fátæktar séu fjölþættar og að lausnir þurfi því að taka mið af ólíkum aðstæðum fólks.
EAPN á Íslandi – netfang: eapn@eapn.is
Fátækt er ekki bara skortur á peningum. Hún er gildra sem erfitt er að losna úr.
Í Gildrunni, hlaðvarpi kjarahóps ÖBÍ réttindasamtaka og EAPN á Íslandi, er fjallað um ólíkar hliðar fátæktar, orsakir hennar, ábyrgð á ástandinu og þær lausnir sem þarf til að fólk geti losnað úr fátæktargildrunni.