Grafík: hringlaga barmmerki í ýmsum litum ÖBÍ með táknum. Fyrsta merkið er með kassa sem táknar fátæktargildru, með textanum: Fátækt er gildra. Næsta merki er með blómi og textanum: UPPRÆTUM fátækt. Síðasta útfærslan er með tákninu dómarahamri með textanum: Fátækt er pólitísk ákvörðun.

FÁTÆKT

Alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt – 17. október

Fátækt á Íslandi

Baráttan gegn fátækt

Kjarahópur ÖBÍ réttindasamtaka

EAPN á Íslandi – samtök gegn fátækt

Gildran – hlaðvarp um fátækt

Minn veruleiki

By Almannatryggingar, Fátækt, Kjaramál, Skoðun

Eft­ir Unni H. Jó­hanns­dótt­ur: „Ég op­in­bera hér tekj­ur mín­ar, les­end­um til glöggv­un­ar á stöðu ör­yrkja, sem marg­ir hafa það þó miklu, miklu verra. Ég lít á líf­eyr­inn sem op­in­ber gögn.“ 231.825 eru krón­urn­ar sem ég fæ í líf­eyri á mánuði, sem 75% ör­yrki, eft­ir skatt. Já, ég greiði skatta. Ég sam­sama mig lág­launa­fólki, vald­lausu fólki, minni­hluta­hóp­um í öll­um sam­fé­lög­um. Þess vegna skrifa ég grein á 1. maí – verka­lýðsdeg­in­um. En ólíkt verka­fólki hafa ör­yrkj­ar eng­an samn­ings­rétt. Það gilda eng­ir samn­ing­ar á milli ör­yrkja og rík­is­valds­ins. Ríkið skammt­ar, og skammt­ar mjög naumt, og all­ir vita það en eng­inn ger­ir neitt. Samt er eineltið liðið. Örorku­líf­eyr­isþegar eru málaðir út i fá­tæka hornið og all­ir vita það. Samt er það liðið og eng­inn ger­ir neitt. Hús­næðis­kostnaður er að sliga fjöl­marga ör­yrkja en eng­inn ger­ir neitt. Eineltið er liðið sem og valdníðsla markaðar­ins.
Read More

Nú er rétti tíminn til að útrýma fátækt og misrétti

By Fátækt, Frétt

Ísland hefur tekið undir yfirlýsingu 142 ríkja sem styðja ákall aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, um mikilvægi þess að hafa málefni og þarfir fatlaðs fólks að leiðarljósi í aðgerðum og viðbrögðum við COVID-19 faraldrinum.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, segir að nú, þegar við réttum úr kútnum eftir Covid faraldurinn, sé lífsnauðsynlegt að útrýma fátækt og misrétti. Það eigi að vera leiðarljós í aðgerðum stjórnvalda.
Read More
Fátækt er pólitísk ákvörðun. Barmmerki með dómarahamri.