Viðburðir

Framtíðarfestival í Grófinni

Borgarbókasafnið - Grófinni Tryggvagata15, Reykjavík

Hátíðin Framtíðarfestival: hvernig á að framtíðast? fer fram 1. mars til 14. mars 2026 á Borgarbókasafninu Grófinni (miðbænum). Allir viðburðirnir eru ókeypis og opnir öllum. » Dagskrá og allar upplýsingar...

Hugvísindaþing

Háskóli Íslands

Hugvísindaþing 2026 verður haldið í Háskóla Íslands dagana 13. og 14. mars. Á Hugvísindaþingi er borið fram það helsta í fræðunum í stuttum fyrirlestrum og málstofum. Aðgangur er ókeypis og...

Alþjóðadagur Downs heilkennis

Með okkur ekki fyrir okkur Á þessum degi klæðumst við mislitum sokkum til að fagna fjölbreytileikanum. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti árið 2011 að 21. mars skyldi vera alþjóðlegur dagur Downs-heilkennis.

Stjórnarfundur

Mannréttindahúsið Sigtún 42, Reykjavík

Fundur stjórnar ÖBÍ réttindasamtaka.

Pöbbkviss UngÖBÍ

UngÖBÍ stefnir á að vera með pöbbkviss laugardagskvöldið 28. mars klukkan 20:00 ♥ Upplýsingar um hvar pöbbkvissið verður haldið munu birtast hér í febrúar.

Stefnuþing ÖBÍ

Stefnuþing ÖBÍ réttindasamtaka með fulltrúum aðildarfélaga verður haldið föstudaginn 17. apríl næstkomandi. Tölvupóstur með nánari upplýsingum hefur verið sendur aðildarfélögum.  

EDF aðalfundur

EDF (European Disability Forum) er samstarfsvettvangur heildarsamtaka fatlaðs fólks í Evrópusambandslöndunum. Aðalfundur EDF 2026 verður haldinn 9. til 10. maí næstkomandi.