

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) hefur það að markmiði að tryggja réttindi fatlaðs fólks til jafns við aðra.
Lögfesting samningsins mun tryggja að fatlað fólk á Íslandi geti byggt rétt sinn á samningnum með beinum hætti. Það þýðir verulega réttarbót.
„Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 13. desember 2006. Ísland undirritaði samninginn 30. mars 2007 og var hann fullgiltur 23. september 2016. Til stendur að lögfesta samninginn á árinu 2025.“ » Stjórnarráðið | Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Allir einstaklingar eru jafnir fyrir lögum og eiga sama tilkall til allra mannréttinda. Með SRFF er viðurkennt að fatlað fólk hefur ekki haft sömu tækifæri og aðrir í gegnum tíðina. Aðildarríkin viðurkenna þessa staðreynd og heita því að vinna að bættum hag og bættum rétti fatlaðs fólks.
Samningurinn er fyrst og fremst jafnréttissamningur. Aðildarríkjum samningsins ber að vinna að jöfnum rétti og jöfnum tækifærum allra óháð fötlun. Samningurinn hefur nú þegar haft víðtæk áhrif á stöðu fatlaðs fólks í aðildarríkjum samningsins.
”