”Bætt aðgengi fatlaðs fólks að samfélaginu bætir aðgengi allra.
Aðgengi fyrir alla felur í sér að fatlað fólk geti lifað eins sjálfstæðu lífi og hægt er án hindrana og sérstakra ráðstafana. Það á meðal annars við um byggingar og umhverfi, samgöngur, upplýsingar og samskiptatækni.
Nánar um stafrænt aðgengi, algilda hönnun, aðgengi að mannvirkjum og samgöngum →
Sækja um stæðiskort fyrir hreyfihamlaða á island.is →
Fatlað fólk á rétt á sérstökum lánum vegna breytinga á eigin húsnæði hjá HMS →
Hagnýtar upplýsingar um bílastæðahús Hörpu tónlistarhúss. →
Upplýsingasíða Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um algilda hönnun mannvirkja. Leiðbeiningar fyrir arkitekta og byggingaraðila. Lög og reglur. →
Fyrirtækið Sjá sér um aðgengisúttektir á vefjum →
Notkun stæðiskorta fyrir hreyfihamlað fólk. →
Nýjar leiðbeiningar (2025 – uppfærðar 2026) um lagningu á leiðarlínum og athyglissvæðum / leiðarlínukerfi innanhúss eru til að skapa gott aðgengi fyrir blinda og sjónskerta. →
Gátlisti til þess gerður að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að tryggja aðgengi fyrir fatlað fólk, hvort sem það er fyrir starfsfólk eða viðskiptavini. →
Hugmyndafræðin og algild hönnun. Hvað felst í aðgengi allra að mannvirkjum, samgöngum og upplýsingum? Hvað er stafrænt aðgengi? →
Leiðbeiningar um undirbúning og framkvæmd viðburða eins og málþingum, ráðstefnum og hátíðum. Markmiðið er að tálma ekki aðgengi fatlaðs fólks. Einnig má nýta leiðbeiningarnar sem gátlista fyrir viðburðahaldara. →
Ný kosningalög nr. 112/2021 tóku gildi 1. janúar 2022. Af því tilefni var gátlisti unninn af Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og byggir á ábendingum frá málefnahóp ÖBÍ um aðgengi.. →
ÖBÍ hóf samstarf vorið 2022 um upplýsingagjöf um algilda hönnun við arkitektafélögin, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) og félag byggingafræðinga til að bæta upplýsingar og leiðbeiningar um algilda hönnun →
Hönnuðir, arkitektar og verkfræðingar! Leiðbeiningarit [PDF] fyrir þau sem bera ábyrgð á skipulagningu almenningsrýma með áherslu á helstu aðgengisþarfir fatlaðs fólks. Ritið er stuðningur við byggingarreglugerð . →
Leiðbeinandi gátlisti fyrir fólk með fatlanir og aðrar skerðingar. Málefnahópur ÖBÍ um aðgengismál vann leiðbeiningar í virku samráði við þjónustuaðila og stofnanir, eins og Isavia og Icelandair. →
Í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Sjálfsbjörg og ÖBÍ réttindasamtök hefur Ferðamálastofa sett af stað fræðslu-og hvatningarverkefni undir nafninu Gott aðgengi. . →